Hvolpurinn Þór tók flugið frá Þórshöfn Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 8. desember 2014 09:30 Þórunn segir Þór afskaplega ljúfan og góðan. Mynd/Sunna Sigríður
Hvolpurinn Þór vakti athygli á samfélagsmiðlum fyrir skömmu þegar hann lagðist í ferðalag frá Þórshöfn til Reykjavíkur. Dýrahjálp Íslands deildi myndum af ferðalagi Þórs en hann er í leit að framtíðarheimili. Hvolpurinn er sem stendur í fóstri hjá Þórunni Tryggvadóttur sem starfar sem sjálfboðaliði hjá Dýrahjálp og hefur þar umsjón með fósturheimilum. „Hann vantaði heimili og ég ákvað að fara í málið,“ segir Þórunn sem er fyrir með tvær Golden Retriver-tíkur á heimilinu. „Hann var alveg pollrólegur í fluginu, ótrúleg hetja.“ Þór verður þriggja mánaða gamall tólfta desember næstkomandi. „Hann er alveg ofboðslega ljúfur og góður hvolpkjáni.“ Dýrahjálp Íslands er sjálfboðaliðafélag sem finnur samastað fyrir heimilislaus dýr og rekur jafnframt athvarf sem tekur við dýrum í leit að heimili. „Fyrir okkur er mikilvægast að velja heimili sem hentar dýrinu vel. Það eru mörg heimili sem eru mjög góð en kannski eitt sem hentar best fyrir þetta dýr.“ Þórunn segir að yfirleitt gangi vel að finna dýrunum athvarf. „Það gengur alltaf mjög hratt fyrir sig þegar maður er með ung dýr, hvolpa eða kettlinga.“ Hægt er að skrá sig sem sjálfboðaliða á heimasíðu Dýrahjálpar. Meðal annars er hægt að vera með fósturheimili fyrir dýr sem eru á milli heimila. „Ég var fóstra í fyrsta skipti í fyrra en sá hundur fór reyndar aldrei frá mér,“ segir Þórunn sem tók ástfóstri við tíkina Þyrlu og veitti henni framtíðarheimili. Ferðalag Þórs vakti athygli á Facebook og Twitter og hafa þegar borist nokkrar fyrirspurnir um hvolpinn. „Það voru margir sem vildu hjálpa, nokkrir búnir að leggja pening inn á reikning fyrir Þór. Við tökum gjald fyrir heilsufarsskoðun, geldingu og svoleiðis og við erum búnar að safna fyrir því.“ Þór er blanda af íslenskum fjárhundi, Labrador og Pointer. „Hann er alveg með Labrador-útlitið og er alveg svartur með hvítt á bringunni,“ segir Þórunn en hún verður með Þór í fóstri þar til framtíðarheimili finnst fyrir hvolpinn. Áhugasamir geta skoðað þau dýr sem eru í leit að framtíðarheimili á heimasíðu Dýrahjálpar, Dyrahjalp.is
Mest lesið „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Tónlist Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Lífið Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Lífið Fyrst skíði og nú golf Lífið Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Lífið Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Lífið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Árin hjá Spotify ævintýri líkust Lífið Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Tónlist Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Lífið Fleiri fréttir Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Árin hjá Spotify ævintýri líkust Einar fékk meira hár en Baldur „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Sjá meira