Hver er höfundurinn? Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 21. desember 2014 10:00 Texti eftir tíu höfunda sem gefa út bók fyrir jólin er með í leiknum.
Fjölmargar skáldsögur koma út þessi jólin. Vísir tók saman upphaf tíu þeirra svo lesendur geti spreytt sig á fimi sinni við það að þekkja stílbragð íslenskra rithöfunda. Textabrotin eru tengd við höfunda neðst í greininni. Höfundar sem koma til greina eru: Arnaldur IndriðasonBjarni BjarnasonGuðbergur BergssonGuðrún Eva MínervudóttirIngibjörg ReynisdóttirJónína LeósdóttirJón Óttar ÓlafssonStefán MániSteinunn SigurðardóttirYrsa Sigurðardóttir 1. „Á þessum einangraða stað var oftast skýjað og dumbungur í lofti og það gerðist aldrei neitt, enda leiddist stúlkunum sem voru komnar að fermingu.“ 2. „Ég og Jesú erum eins og tvær akfeitar manneskjur á pínulitlum báti rekumst hvort á annað hlæjandi kinn við kinn vömb við vömb klessast saman hlæjandi keppirnir dúa undirhökurnar hristast bátsskelin tekur aðra dýfu ég dett á Jesú sem puðrar með vörunum og blikkar mig: Here's looking at you, kid ég dey úr hlátri!“ 3.„Hvass vindur blés yfir Miðnesheiðina. Hann kom norðan af hálendinu og yfir úfið hafið á Faxaflóanum og klifraði upp á heiðina, napur og kaldur.“ 4.„Kristófer lítur á úrið, svo dregur hann andann djúpt og reynir að slaka á. Hann situr við fjögurra manna borð á kaffihúsinu á fjórðu hæð Perlunnar í Öskjuhlíð með ósnertan kaffibolla fyrir framan sig.“ 5.„Fyrir mitt minni, í sveitinni á Brunasandi, byrjaði ég daginn á því að klifra upp á eldhúsborð, klessa nefi á rúðu og gá til jökuls. „Æ, æ, bless, hann fór í kvöld ... æ, æ, þá ...!“ þuldi ég fram og aftur, ef það sást ekki til hans.“ 6.„Þau mynduðu eins konar tröppur á bekknum. Telpan sem var minnst sat við annan endann og eldri bræðurnir tveir við hlið hennar. Eins, þriggja og fjögurra ára. Grannir leggirnir héngu fram af harðri setunni. Ólíkt venjulegum börnum iðuðu systkinin ekki í sætinu og ekkert þeirra sveiflaði fótunum.“ 7.„Lestarstöðin í Cambridge var nánast mannlaus. Á brautarpalli 6 stóð maður og beið eftir hraðlestinni frá London. Þetta var meðalmaður á hæð, klæddur gráum jakkafötum, yfirhafnarlaus; dagurinn hafði verið sólríkur og loftið var enn heitt og rakt.“ 8.„Ég hafði losað um hálstauið í langþráðu hléi milli skjólstæðinga, farið úr skónum og lagst sjálfur á meðferðarbekkinn þegar ég sá nafn Önnu O blikka á farsímaskjánum. Hún hafði aldrei hringt í mig öll þau ár síðan við skiptumst á númerum.“ 9.„Annað hvort ykkar þarf að koma strax heim. Engar afsakanir! Afmælisboð aldarinnar endaði í algjöru rugli áðan … en byrjaði samt eiginlega aldrei.“ 10.„Sara veit hvorki í þennan heim né annan. Við hlið hennar sefur næturgestur eins og ungbarn, vafinn inn í mjúka dúnsæng. Það hvílir ró yfir hlýlegri íbúðinni. Á gömlum tekkskenk hringsnýst vínylplata á eikarklæddum „vintage“ Pioneer plötuspilara frá árinu 1975. Nálin í spilaranum hjakkar í djúpri rispu í ágætu lagi hljómsveitarinnar Smokie, Living next door to Alice.“ Svörin eru að finna neðst í greininni. 1. Guðbergur Bergsson. Þrír sneru aftur 2. Guðrún Eva Mínervudóttir. Englaryk 3. Arnaldur IndriðasonKamp Knox 4. Stefán Máni. Litlu dauðarnir 5. Steinunn Sigurðardóttir. Gæðakonur 6.Yrsa Sigurðardóttir.DNA 7. Jón Óttar Ólafsson. Ókyrrð 8.Bjarni Bjarnason. Hálfsnert stúlka 9. Jónína Leósdóttir. Bara ef ... 10.Ingibjörg ReynisdóttirRogastanz
Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira