Heimilisfólk á Sólvangi liggur langtímum saman í rúmum sínum vegna skorts á starfsfólki Heimir Már Pétursson skrifar 12. janúar 2014 21:00
Dæmi eru um að heimilisfólk á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði liggi fjötraðir í rúmum sínum þar sem ekki er nægjanlega margt starfsfólk til að sinna því. Forstjóri Sólvangs segir botninum hafa verið náð í niðurskurði til heimilisins. Niðurskurðuinn á Sólvangi hefur verið svo mikill undanfarin ár að starfsfólkið ræður ekki við að sinna öllu heimilisfólki þannig að það þarf að liggja rúmfast þegar það að öðrum kosti ætti að geta farið fram úr rúminu. Nýlega hætti hjúkrunardeildarstjóri störfum á Sólvangi vegna þess álags sem er á starfsfólki og lýsti ástandinu á heimilinu í viðtali við fréttasíðuna Gaflari í Hafnarfirði. Heimilismenn liggi m.a. langtímum saman fjötraðir í rúmum sínum. Forstjórinn segir þetta örlítið rangtúlkað. Þarna sé fyrst og fremst verið að hugsa um öryggi fólks. „Til að tryggja að það missi ekki jafnvægið, detti fram úr stólum og slíkt. Þegar við síðan stöndum frami fyrir fyrir þessari staðreynd, að það er búið að fækka starfsfólki verulega, kemur það fram í þessum gæðavísum sem við erum að mæla að notkun þessa öryggisbúnaðar fer fjölgandi,“ segir Árni Sverrisson forstjóri Sólvangs.Og það er vegna þess að þið hafið einfaldlega ekki nægjanlega margt starfsfólk til að sinna ykkar heimilisfólki? „Já, það er okkar skoðun að þetta sé í raun komið það langt,“ segir hann. Starfsfólki hefur fækkað um 25 á undanförnum tveimur árum, en í dag vinna 45 við umönnun á Sólvangi og starfsmenn eru í heild 67 sem sjá um 58 heimilismenn. „Til þess að stemma stigu við útgjöldunum höfum við haft ákveðnar reglur á því hvenær má kalla inn afleysingarfólk. Við gerum það t.d. ekki ef einn starfsmaður dettur út og er veikur á vakt. Þannig að þá að sjálfsögðu, eins og komið hefur fram, er þetta orðið spurning um forgangsröðun. En allir þeir einstaklingar sem búa hjá okkur fá sína þjónustu en þeir þurfa stundum kannski að bíða eftir henni og þeir vildu kannski komast fyrr fram úr rúminu heldur en þeir fá starfsfólkið til að hjálpa sér við,“ segir Árni. Fundað hafi verið með fulltrúum Landlæknisembættisins um stöðu mála í gær og hann voni að lausn finnist á vanda hjúkrunarheimilisins og hann bindi vonir við ákvörðun heilbrigðisráðherra um úttekt á starfsemi hjúkrunarheimila.Gefur ekki augaleið að það þarf ekki mikla úttekt til að komast að því að hér þarf að ráða fleira fólk? „Það er sannarlega mín skoðun og það eiginlega hvarlar ekki annað að mér en það verði niðurstaðan. Jú, jú ég held að það ætti að vera hægt að vinna það hratt og vel,“ segir Árni Sverrisson.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira