Sameinaði frændur í fyrsta sinn Gunnar Leó Pálsson skrifar 28. maí 2014 09:00 Siggi Björns og Pálmi Sigurhjartarson kynntust í Berlín og halda af stað í tónleikaferðalag. visir/gva „
Ég var í langan tíma að reyna að koma því fyrir mig á hvern hann minnti mig, en svo barst talið að Skapta Ólafssyni og sagði hann þá, Skapti frændi, þeir höfðu þó aldrei hist,“ segir tónlistarmaðurinn Pálmi Sigurhjartarson, en hann samdi lag sérstaklega við texta Kára Waage fyrir frændurna og tónlistarmennina Sigga Björns og Skapta Ólafsson. Frændurnir höfðu þó aldrei hist þó svo þeir séu báðir tónlistarmenn. „Þegar ég frétti að þeir hefðu aldrei hist ákvað ég að semja lag sem frændurnir áttu að syngja og hittust þeir í fyrsta sinn í stúdíóinu og fór ákaflega vel á með þeim,“ bætir Pálmi við. Hljóðrituð voru þrjú lög og tvö af þeim koma út núna á næstunni, Tveir vinir, í flutningi Skapta og Sigga, og Tvær dúfur, sungið af Sigga. Pálmi og Siggi Björns kynntust í Berlín þegar Pálmi bjó þar á síðasta ári. „Siggi hefur búið og starfað víða um heiminn síðustu 25 ár, lengst af í Danmörku og í Þýskalandi. Hann á þar mjög tryggan og stóran áheyrendahóp sem fylgir honum.“ Þeir félagar spiluðu talsvert saman í Berlín og víðar og ætla þeir að koma fram á nokkrum tónleikum hér á landi. „Við verðum á Eyrarbakka í kvöld, Siglufirði á morgun og Akureyri á föstudag.“ Þeir félagar koma svo fram í Reykjavík á sunnudag á Hátíð hafsins og á Café Rosenberg á mánudaginn kemur.
Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Fleiri fréttir Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda Sjá meira