Edward Snowden: „Ég var þjálfaður sem njósnari“ Randver Kári Randversson skrifar 28. maí 2014 11:00 Edward Snowden dvelur nú í Rússlandi. Mynd/AFP
Edward Snowden segist í viðtali við fréttastofu NBC hafa verið þjálfaður sem njósnari, en ekki einungis sem tæknilegur sérfræðingur. „Ég var þjálfaður sem njósnari, í hefðbundnum skilningi þess orðs, þar sem ég bjó erlendis og starfaði sem leynilegur útsendari og þóttist starfa við eitthvað sem ég gerði ekki, og jafnvel undir fölsku nafni,“ segir Snowden í viðtali sem tekið var upp í Rússlandi í síðustu viku. Snowden er eftirlýstur af bandarískum stjórnvöldum fyrir njósnastarfsemi, eftir að hafa lekið gögnum um persónunjósnir Bandarísku þjóðaröryggisstofnunarinnar, NSA, í maí á síðasta ári. Hann fékk pólitískt hæli í Rússlandi í ágúst á síðasta ári og dvelur nú þar í landi. Hann segir bandarísk stjórnvöld reyna að grafa undan trúverðugleika sínum, með því að gera lítið úr starfsreynslu sinni. „Ég er tæknilegur sérfræðingur. Ég vinn ekki með fólki. Ég afla ekki nýrra njósnara. Það sem ég geri er að ég fæ tölvukerfi til að vinna fyrir Bandaríkin. Það hef ég gert á öllum stigum, allt frá botninum til æðstu stiga.“ Hann segir að umfangsmikil reynsla sín hjá bandarískum öryggisstofnunum sýni að hann hafi verið meira en lágt settur tölvusérfræðingur. „Ég kom upp tengslaneti og þróaði aðferðir til að halda okkar upplýsingum og okkar fólki öruggu á fjandsamlegustu og hættulegustu stöðum í heimi“, segir Snowden.Viðtalið í heild sinni verður frumflutt í kvöld, en hér fyrir neðan má sjá brot úr því.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira