Innlent

Hugmyndir menntamálaráðherra slæmt innlegg í samningaviðræður

Heimir Már Pétursson skrifar
Formaður Félags framhaldsskólakennara segir menntamálaráðherra á villigötum. Hugmyndir hans um hagræðingu og breytingar í framhaldsskólunum séu slæmt innlegg í samningaviðræðurnar.
Formaður Félags framhaldsskólakennara segir menntamálaráðherra á villigötum. Hugmyndir hans um hagræðingu og breytingar í framhaldsskólunum séu slæmt innlegg í samningaviðræðurnar. vísir/stefán
Formaður Félags framhaldsskólakennara segir hugmyndir menntamálaráðherra um breytingar á grunnskólakerfinu ekki til þess fallnar að leysa úr kjaradeilu kennara við ríkið. Ekki dugi að hagræða þegar búið sé að kreista 12 milljarða út úr framhaldsskólakerfinu á undanförnum árum.

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sagði í fréttum okkar í gær að hann væri reiðubúinn að ræða um kerfisbreytingar á framhaldsskólunum, m.a. með því að stytta framhaldsnámið í þrjú á sem skapaði hagræðingu sem nýta mætti til að bæta kjör kennara. Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður Félags framhaldsskólakennara segir þetta ekki liðka til í samningaviðræðum við ríkið

„Okkar skoðun er að menntamálaráðherra sé algerlega á villigötum með þessar hugmyndir sínar. Ég vil benda á að frá hruni er búið að kreista út úr framhaldsskólakerfinu 12 milljarða. Kjörin hafa drabbast niður og  rekstur skólanna. Margir framhaldsskólar eru komnir hættulega nálægt gjaldþroti. Þannig að þetta eru algerlega hugmyndir sem við botnum ekkert í,“ segir Aðalheiður

Samninganefndir Félags framhaldsskólakennara og ríkisins komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan hálf ellefu í morgun. En kennarar telja að þeir hafi dregist verulega aftur úr sambærilegum stéttum hjá hinu opinbera og segir Aðalheiður hugmyndir menntamálaráðherra um enn frekari hagræðingu innan framhaldsskólanna ekki auka líkur á að samningar takist.

„Það þarf miklu frekar að setja fjármuni inn í kerfið. Og þessi barátta sem við eigum núna í, þessar samningaviðræður, er barátta fyrir almannahagsmunum,“ segir formaðurinn.

Baráttan snúist um að bæta rekstur framhaldsskólanna svo þeir geti sinnt hlutverki sínu og veitt nemendum almennilega þjónustu og nám og kjör kennara verði bætt.

„Þannig að ég vil segja að þessar hugmyndir eru mjög slæmt innlegg inn í þessar erfiðu samningaviðræður sem eru núna í gangi,“ sagði Aðalheiður Steingrímsdóttir rétt fyrir samningafund með samninganefnd ríkisins í morgun.

Ef ekkert breytist í þeim viðræðum á allra næstu dögum má búast við að framhaldsskólakennarar fari að undirbúa aðgerðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×