Stjórnarflokkarnir njóta mests trausts hvað lög og reglu varðar Baldvin Þormóðsson skrifar 5. febrúar 2014 12:30 Flokkar Sigmundar Davíðs og Bjarna Benediktssonar njóta mests traust í málum sem tengjast lög og reglu. vísir/stefán
Flestir telja Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkinn vera besta til þess fallna að viðhalda lögum og reglu. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. Könnuð var afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi besta til þess fallna að leiða fimm málaflokka tengda grunnstoðum samfélagsins. Þeir fimm málaflokkar sem um ræðir voru; lög og regla almennt, heilbrigðismál, mennta- og skólamál, nýting náttúruauðlinda og umhverfismál. Þá sögðu 39,9 prósent þátttakenda Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn Lög og regla almennt og 12,5 prósent sögðu Framsóknarflokkinn. Einungis þriðjungur taldi annan hvorn ríkisstjórnarflokkanna bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn umhverfismál. Örlítið fleiri völdu Sjálfstæðisflokkinn, eða 19,2 prósent en 16,3 prósent Framsóknarflokkinn. Til samanburðar töldu 38,1 prósent Vinstri-græn vera best til þess fallin að leiða málaflokkinn. Það sama má segja um málaflokkinn Nýting náttúruauðlinda, en þá sögðu 25 prósent þátttakenda Vinstri-græn en 23 prósent Sjálfstæðisflokkinn og 16,5 prósent Framsóknarflokkinn. Þegar spurt var hvaða flokkur væri bestur til þess fallinn að sjá um heilbrigðismál kom Sjálfstæðisflokkurinn best út með 33,4 prósent en Samfylking þar á eftir með 24,5 prósent þátttakenda. Síðastir í röðinni voru Píratar með 4,4 prósent og Framsóknarflokkurinn með 12,2 prósent. Vert er að taka fram að Lög og regla almennt var eini málaflokkurinn af þeim fimm sem að meirihluti þátttakenda lýsti yfir trausti til sitjandi stjórnarflokka. Um aðferðarfræði könnunar MMR: Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR Svarfjöldi: 981 einstaklingar Dagsetning framkvæmdar: 9.-15. janúar 2014
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Sjá meira