Hamingjusamasta fátækrahverfi í heimi Frosti Logason skrifar 11. október 2014 10:44
Soweto er eitt sögufrægasta fátækrahverfi Suður Afríku og þó víðar væri leitað. Hverfið byggðist upp á meðan aðskilnaðarstefna hvíta minnihlutans réð ríkjum í landinu en hún var við lýði mestan part tuttugustu aldarinnar. Uppþotin í Soweto árið 1976 urðu kveikjan að andstöðunni við aðskilnaðarstefnuna sem síðan leið undir lok árið 1991. Heimsókn okkar í hverfið var sérstök upplifun. Við dvöldum þar í tvo daga á hosteli sem heitir Lebo´s Soweto Backpackers. Eigandinn heitir auðvitað Lebo og er mjög afslappaður náungi sem lifir eftir lífsreglum rastafari stefnunnar. Bob Marley, Snoop Lion og allskyns reggí tónlist hljómar hér stöðugt í hátalara kerfinu.Lebo stofnaði farfuglaheimili í Soweto fyrir 11 árum síðan.Sannkölluð Jamaíka stemmning.Staðurinn er skreyttur eins og strandkofi á Jamaíka. Bambus, hvítur sandur og trópíkalskur gróður er hér allt um lykjandi. Þar er rekinn hjólaleiga og við skelltum okkur auðvitað í fjögurra tíma túr um hverfið ásamt innfæddum leiðsögumanni. Lebo opnaði hostelið fyrir ellefu árum síðan. Þá var ekkert farfuglaheimili í Soweto og þess vegna má segja að hann hafi verið ákveðinn brautryðjandi í því að fá almenna ferðamenn í hverfið. Lebo er af þessum sökum ákaflega vel liðinn í nágrenninu og gestir hans fá alls staðar höfðinglegar móttökur. Lebo´s Soweto backpackers er enn þann dag í dag eina farfuglaheimilið í Soweto. Unga fólkið í Soweto er hamingjusamt og stolt af hverfinu sínu.Í Soweto, búa rúmar þrjár milljónir svartra Suður-Afríkubúa við þröngan kost. Minnsta vindhviða virðist geta feykt óhrjálegum kofunum út í veður og vind. En fólkið hér virðist vera mjög hamingjusamt. Það kom okkur skemmtilega á óvart. Okkur var allstaðar vel tekið og ávallt með vinalegu viðmóti. Þarna ríkja ákveðnir tískustraumar, bæði í tónlist og fatnaði og íbúarnir eru mjög stoltir af öllu því sem viðkemur Soweto. Það er mikið af svölum töffurum í Soweto.Joburg bjór í mjólkurfernuÁ ferð okkar um hverfið stoppuðum við á mjög frumstæðu veitngahúsi sem bauð upp á einskonar þjóðarrétt Soweto. Þar er um að ræða soðið kjöt af höfði beljunnar, ekki ósvipað íslenskum sviðahausum. Þetta var borið fram með haframjöli, salti og pipar og svo skolað niður með bjór úr fernu. Á staðnum var ekkert rennandi vatn þannig að gestir fengu að dífa höndunum ofan í kalt vatn í rauðum bala áður en byrjað var að borða. Þannig var ítrasta hreinlætis gætt. Mjög sérstök máltíð sem var snædd inn í kofa sem samanstóð einungis af bárujárnsplötum á alla kanta. Þjóðarréttur Soweto kemur upphaflega frá Zulu ættbálk Afríku.Krakkarnir í Soweto virðast vera hamingjusömustu börn í heimi. Þau umvefja mann með þéttu faðmlagi um leið og þau sjá mann á meðan foreldrar þeirra standa álengdar og hlæja. Stemmningin hér er engu lík og upplifunin af heimsókninni mun jákvæðari en maður hefði nokkurn tíman getað ímyndað sér. Það er frábært að koma til Soweto.Krakkarnir í Soweto geisla af gleði og taka gestum fagnandi. Vinirnir Frosti Logason og Sigurður Þorsteinsson fara í haust í sex vikna ferðalag um Asíu og Afríku. Þeir ætla að leyfa lesendum Vísis að fylgjast með ferðalaginu í máli, myndum og myndböndum. Félagarnir fara meðal annars í safarí í Suður-Afríku, fara á brimbrettanámskeið á Balí og læra að kafa í Taílandi. Verkefnið gengur undir heitinu AsíAfríka.
AsíAfríka Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira