Engill með ástarboga Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 11. október 2014 10:00 Bergljót Arnalds með hvíta vængi eins og ástarguðinn Cupid. Cupid er sonur Venusar og ber með sér örvar og boga sem hann skýtur í hjarta fórnarlamba sinna sem á augabragði verða ástfangin. mynd/Bjarney Lúðvíksdóttir
Rithöfundurinn, söng- og leikkonan Bergljót Arnalds bakaði sjóræningjaköku fyrir fimm ára afmæli dóttur sinnar í dag. Hún segist vera kúrari með ævintýrahjarta og ætlar aldrei aftur að reyna að gefa súkkulaði upp á bátinn. Hvað er það sem þú gerir alltaf um helgar? Að vera á meðan er; vaxa, dafna og njóta.Hvað ætlar þú að gera sérstakt um þessa helgi? Dóttir mín verður fimm ára í dag og því ætla ég að halda heljarinnar veislu með sjóræningjaköku, vinum og vandamönnum. Það er búin að vera mikil tilhlökkun í heilt ár svo þetta verður afar skemmtilegt.Hvar finnst þér best að vera um helgar? Úti í náttúrunni eða með þeim sem ég elska.Vakirðu lengur um helgar? Já, stundum dett ég í það að spila á píanóið eða grúska eitthvað fram eftir.Ertu árrisul eða sefurðu út? Það fer alveg eftir stemningunni og hvað er að gerast hverju sinni. Ég er bæði kúrari og með ævintýrahjarta.Hver er draumamorgunverðurinn? Nýir ávextir beint af trjánum og mátulega þroskuð ber.Hvernig er dæmigert laugardagskvöld í þínu lífi? Það er ekkert dæmigert. Hver dagur sem við lifum er einstakur. Síðasta laugardagskvöld söng ég á tónleikum í Danmörku og í kvöld ætla ég að kúra með stelpunni minni eftir brjálaðan afmælisdag og spjalla um gjafir, gleði og gesti.Ertu með nammidag og hvert er uppáhaldssælgætið? Allir dagar eru nammidagar í mínu lífi. Ég man eftir einum degi þar sem ég reyndi að hætta að borða súkkulaði og það verður ekki gert aftur nema að mikið liggi við.Hvað maularðu í sjónvarpssófanum á kósíkvöldum? Stundum popp, stundum kartöfluflögur og stundum súkkulaði.Heldurðu hvíldardaginn heilagan? Það er hvíld í svo mörgu og allir dagar eru heilagir.Ferðu til kirkju á sunnudögum? Ef þar er athöfn sem skiptir mig máli, eins og skírn.Hvað verður með sunnudagskaffinu og með hverjum drekkur þú það? Síðasta sunnudagskaffi var með Mette, danskri söngkonu sem hefur verið að berjast við krabbamein. Hún er yndisleg. Það er enn óráðið hver kemur í næsta sunnudagskaffi en eitt er víst að það verður til nóg af kökum.Til hvers eru helgarfrí? Frí og uppbrot eru nauðsynleg lífinu. Það er svo misjafnt hvað hentar fólki til að hlaða orkuna sína og fylla hjartað. Hjá mér er það ástin, náttúran og sköpun.Hvað er helst að frétta? Ég er nýlega farin að syngja opinberlega sem söngkona og hef verið að semja lög. Ég flutti lag eftir sjálfa mig við þakkarbæn álfkonunnar Taminu á Álfahátíðinni á síðustu sumarsólstöðum og annað lag, Hurricane, í Danmörku í vor. Um síðustu helgi frumflutti ég nýtt lag á Jótlandi um ástardrenginn Cupid og næst á dagskrá eru heimatónleikar á afmælinu mínu, 15. október. Mig langar að bjóða þeim sem hefðu gaman af því að hlusta á fáein lög eftir mig og stefnan er að fjármagna útgáfu í framtíðinni.Af hverju lag um Cupid? Af því hann er svo stríðinn með ástarörina sína. Hann á skilið að það sé samið lag um hann og prakkaraskapinn þegar hann leikur sér að því skjóta fólk í hjartastað með litla leikfanginu sínu.Hvernig stóð á þessum tónleikum á Jótlandi? Danska söngkonan Methe Danefeldt Clemmensen bauð mér að flytja lagið ásamt tangó sem ég samdi í nýjum tónleikasal hennar á sveitabúgarði á Jótlandi, ásamt söngvurum frá Noregi, Hollandi og Finnlandi. Það var troðið út úr dyrum í þessum litla sal og virkilega heitt.Hvernig tilfinning var að frumflytja nýtt lag eftir sjálfa sig fjarri heimahögum og í troðfullum sal? Það var fiðringur, skelfing og gleði; allt á sama tíma.Hér fyrir neðan má sjá myndbönd með lagasmíðum Bergljótar Arnalds:
Mest lesið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Lífið Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Lífið 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat Lífið Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Barnahátíðin Kátt snýr aftur Lífið Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið Fleiri fréttir Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Sjá meira