Skuggaleg skilaboð ekki talin hótun Jakob Bjarnar skrifar 11. febrúar 2014 14:57 Konan fékk óhreina sprautunál lánaða og smitaðist af lifrarbólgu C.
Ónefnd kona var sýknuð í héraðsdómi Reykjaness í dag í máli á hendur henni er varðar hótanir sem ákæruvaldið telur felast í smáskilaboðum sem hún sendi karlmanni sem smitaði hana af lifrabólgu C. Í dómnum kemur fram að konan hafi sent skilaboðin í bræði og þau hafi ekki falið í sér neina neina hótun. Hún lýsir atvikinu svo að hún og „sponsorinn“ hennar hafi fallið saman og verið í mikilli neyslu fíkniefna. Bæði sprautuðu þau sig. „Í umrætt sinn hafi þau verið búin að vera í neyslu í nokkra daga og margsinnis sprautað sig. Þetta kvöld hafi hreinar nálar verið búnar og þau stödd í Hafnarfirði. Þau hafi ekki viljað fara niður á Landspítala til að fá hreinar nálar og hún því spurt brotaþola hvort óhætt væri fyrir hana að nota nál sem hann var búinn að sprauta sig með. Brotaþoli hafi sagt henni að það væri óhætt.“ Seinna kom á daginn að konan hafði smitast og í dómnum segir að hún hafi talið það jafngilda dauðadómi. Hún sendi manninum skilaboð vegna þeirrar ályktunar sinnar að hann myndi einnig deyja af völdum sjúkdómsins. Skilaboðin voru svohljóðandi: „Thu ert daudur helvitis hommatittur.. munt deyja bradum“. Skilaboðin voru send voru í gegnum tölvu, nafnlaus og þannig órekjanleg. Maðurinn leitaði strax til lögreglu þegar honum bárust þau. Í ákæru segir að skilaboðin hafi verið til þess fallin að vekja hjá manninum ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð. Fyrir dómi sagði maðurinn að hefði nafn konunnar fylgt hefði hann ekki óttast neitt. Sagðist hann ekki hafa viljað að málið hefði fengið þennan framgang, hann vildi helst ekki gefa skýrslu; hann hræddist konuna ekki og þau væru góðir vinir í dag.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Sjá meira