„Við erum búin að fá nóg“ Birta Björnsdóttir skrifar 11. febrúar 2014 20:00
Í fréttum okkar undanfarið höfum við fjallað um svonefnda ofurtolla á innflutning á landbúnaðarvörum, í kjölfar þess að Hagar sendu inn beiðni til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um afnám tollanna við innflutning á nokkrum tegundum af ostum. Sama hver niðurstaðan úr ráðuneytinu verður eru margir þeirrar skoðunar að við núverandi kerfi verði ekki unað. „Við teljum einfaldlega að heilbrigð samkeppni sé það sem við eigum að byggja atvinnulífið á Íslandi á. Landbúnaðartollarnir eru einfaldlega hindrun á þeim vegi," segir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. „Við erum einfaldlega búin að fá nóg." Almar segir að dæmi um óhagkvæmni í núverandi kerfi séu mýmörg, meðal annars þegar kemur að frosnum frönskum kartöflum. „Dæmin eru áhugaverð og ef við skoðum til dæmis frönsku kartöflurnar sem við neytum, þær eru í raun framleiddar úr erlendu hráefni, erlendum kartöflum það er að segja. Sú tollvernd sem þar er í gangi missir marks því þar er í raun ekki verið að vernda innlenda framleiðslu eins og áskilið er," segir Almar. „Ofaní það er tollurinn hér 76% á franskar kartöflur frá Evrópusambandinu, samanborið við eingöngu um 14% toll þegar við horfum á innflutning á sambærilegri vöru frá Evrópusambandinu. Munurinn er fimmfaldur." Þó að dæmið um frosnu frönsku kartöflurnar sé eitt af öfgakenndari birtingarmyndum hinna svonefndu ofurtolla er það engu að síður áhugavert að árið 2012 greiddu landsmenn um 200 milljónir króna í tolla af frosnum frönskum. „Ég er viss um að neytendur hefðu verið til í að eyða þessum fjármunum í annað," segir Almar.
Mest lesið Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Erlent Brotist inn og gert sig heimakominn Innlent Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Innlent Kjartan Guðmundsson er látinn Innlent Framsókn næði ekki inn á þing Innlent Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Innlent Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Innlent Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innlent Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Erlent Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Innlent Fleiri fréttir Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Sjá meira