Innlent

Ræddi hægri beygju á rauðu ljósi í jómfrúarræðu

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Stefán
Fjóla Hrund Björnsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins, flutti jómfrúarræðu sína á Alþingi í dag undir liðnum störf þingsins. Í ræðu sinni sagðist hún telja tímabært að breyta umferðarlögum svo hægribeygjur yrðu leyfilegar á rauðu ljósi. Það yrði á ábyrgð ökumanna að ákveða hvenær slíka beygju ætti að taka.

Sagðist hún telja að Íslendingar ættu að skoða þá hugmynd, því það hefði reynst vel í mörgum löndum. Ef um væri að ræða gatnamót þar sem ekki ætti við að taka hægri beygju á rauðu ljósi væri hægt að bæta við þar til gerðu skilti. Með þessu fyrirkomulagi myndi líklega sjá á umferðarþunga.

Þrír Alþingismenn 26 ára eða yngri sitja nú á Alþingi Íslands. Þau Haraldur Einarsson, Jóhanna María Sigmundsdóttir og Fjóla Hrund Björnsdóttir, sitja öll á þingi fyrir Framsóknarflokkinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×