Allnokkrar ábendingar borist Freyr Bjarnason skrifar 11. febrúar 2014 21:29 Viðamikil leit var gerð í sjó og í lofti, án árangurs. „
Það hafa komið allnokkrar ábendingar sem verður unnið úr í framhaldinu,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, aðstoðaryfirlögregluþjónn. Lögreglan leitar nú að þeim sem hafði samband við Landhelgisgæsluna og tilkynnti um leka í báti á Faxaflóa. Viðamikil leit var gerð í kjölfarið, á sjó og í lofti, án árangurs. Lögreglan birti hljóðupptöku af neyðarkallinu á Facebook-síðu sinni í dag. Þar voru þeir sem þekkja röddina og vita hver þar talaði hvattir til að hafa samband við lögregluna. „Það hefur verið haft samband við okkur símleiðis, í gegnum Fésbókarsíðuna og í tölvupósti,“ segir Kristján. Tilkynning lögreglu hljóðaði svo:Sunnudaginn 2. febrúar sl., laust fyrir klukkan þrjú síðdegis, barst neyðarkall frá báti úti við Faxaflóa. „Báturinn er farinn að leka mikið og við erum að fara í flotgallana,” sagði m.a. í tilkynningunni. Brugðist var skjótt við og hófst mikil leit að bátnum, enda málið grafalvarlegt. Reynt var árangurslaust að ná aftur sambandi við tilkynnanda, en engar frekari upplýsingar voru um bátinn eða staðsetningu hans.Báturinn fannst ekki þrátt fyrir viðamikla leit, en grunur leikur á að um hafi verið að ræða visvítandi ranga tilkynningu senda til vaktstöðvar neyðarsímsvörunar. Málið er nú til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem birtir hljóðupptöku af neyðarkallinu. Þeir sem þekkja röddina og vita hver þarna talar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Mest lesið Sambýliskonan sem sá allt og bróðirinn sem þekkti ekki fjölskylduna Innlent Bandaríska sendiráðið elur á ótta við hælisleitendur og útlendinga Innlent Hagsmunir barnanna hafi ekki áhrif á afstöðuna til veiðigjalda Innlent Segir mögulegt að hundurinn sé á lífi Innlent Krefjast bóta á umferðaröryggi í kjölfar alvarlegs slyss sjö ára drengs Innlent Tveir handteknir eftir húsleit í Laugardal og Kópavogi Innlent Stór lögregluaðgerð í Laugardal Innlent Vill palestínska fánann niður við ráðhúsið Innlent Hæstiréttur opnar á brottflutning til þriðja ríkis Erlent Engin árangur af símtalinu og fjórtán látnir eftir árás á Kænugarð Erlent Fleiri fréttir Sakfelldur en ekki gerð refsing fyrir að bana móður sinni Tveir handteknir eftir húsleit í Laugardal og Kópavogi Bandaríska sendiráðið elur á ótta við hælisleitendur og útlendinga Vonast til að samkomulag náist innan skamms, vonandi í dag Sambýliskonan sem sá allt og bróðirinn sem þekkti ekki fjölskylduna Engar fréttir af þinglokum en veiðigjöldin ekki á dagskrá í dag Hagsmunir barnanna hafi ekki áhrif á afstöðuna til veiðigjalda Fjöldi ökumanna stöðvaður í umferðinni Þingflokksformenn semja inn í nóttina Krefjast bóta á umferðaröryggi í kjölfar alvarlegs slyss sjö ára drengs Vill palestínska fánann niður við ráðhúsið Segir mögulegt að hundurinn sé á lífi Minnihluti verði að sætta sig við að hann sé ekki við völd Taldi ekki ástæðu til að kalla inn varamann á meðan hún fór í frí „Börnin útskrifast með bókstaf hjá okkur en tölur í framhaldsskóla“ Stór lögregluaðgerð í Laugardal Verði svo gott sem heimilislaus í Kópavogi Gæsluvarðhald frönsku konunnar framlengt Málþóf, hætta í umferðinni og umdeildur fáni Birna tekur sæti Áslaugar á þingi Afkomanda Trampe greifa hleypt inn í Alþingishúsið Hafnaði lægstu tilboðum í smíði brúa á Vestfjörðum Þyrlan sækir slasaðan göngumann í Patreksfjörð „Mun koma í ljós“ hvort kennarar eða Tripical þurfi að endurgreiða Björgunarbátur Ormsins langa blés ekki út Fjórtán fengu úthlutað fræðimannadvöl í Jónshúsi Væri hræddari við loftárásir en Palestínumenn væri hún í Palestínu Sýklalyfjaónæmar bakteríur greindust í íslenskum svínum Þrýst á flugmenn Landhelgisgæslunnar meðan samningar tefjist „Mjög óeðlileg nálgun“ Sjá meira