Voru ekki með umsamda tryggingu fyrir flugmenn er sjúkraflugvél fórst Garðar Örn Úlfarsson skrifar 12. febrúar 2014 07:00 Frá brotlendingunni í Hlíðarfjalli 5. ágúst 2013.
Þegar sjúkraflugvél Mýflugs brotlenti á Akureyri í ágúst síðastliðnum var félagið ekki með gildar tryggingar fyrir flugmenn sína í samræmi við kjarasamning við Félag íslenskra atvinnuflugmanna. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins. „Varaformaður og framkvæmdastjóri FÍA hafa átt nokkur símtöl við stjórnarformann Mýflugs í dag vegna gruns um að alvarlegur ágalli hafi verið, og sé hugsanlega enn á tryggingamálum félagsins,“ segir í tölvupósti sem Sindri Sveinsson, framkvæmdastjóri FÍA, sendi flugmönnum Mýflugs í haust sem leið, nokkru eftir slysið í Hlíðarfjalli.Sindri Sveinsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra atvinnuflugmanna.Tryggingar í lagi eins og er Í slysinu fórust flugmaður og sjúkraflutningamaður. Annar flugmaður sem lifði hefur enn ekki tekið upp störf. Samkvæmt kjarasamningnum hefði Mýflug átt að kaupa tryggingar fyrir flugmennina sem tækju bæði til andláts og hugsanlegs missis á flugmannsréttindum vegna afleiðinga slyss. Um er að ræða upphæðir sem hlaupa á tugum milljóna króna. Hvorki Sindri Sveinsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), né Hafsteinn Pálsson, formaður félagsins vilja staðfesta að tryggingar Mýflugs á slysdaginn hafi ekki verið samkvæmt kjarasamningi við félag þeirra. „Við ætlum ekki að tjá okkur um það. Ég veit alla vega að allar tryggingar hjá þeim eru í lagi eins og er,“ segir Sindri Sveinsson.Hafsteinn Pálsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna.Ekki taktískt að gefa upplýsingar „Eins og þú getur rétt ímyndað þér þá get ég ekki gefið þér neinar upplýsingar um það. Það væri ekki taktískt mjög flott hjá mér að gefa eitthvað út í blöðin ef það væri einhvern veginn öðruvísi en það ætti að vera - eða í lagi, eða hvernig sem það er,“ segir formaður FÍA. „Það er rangt,“ svaraði Leifur Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Mýflugs, er hann var spurður hvort rétt væri að félagið hefði ekki verið með tryggingar í samræmi við samninginn við FÍA.Leifur Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Mýflugs.Stöð 2/BaldurTelur umfjöllun langt yfir strikið Óljóst er um stöðu bótauppgjörs vegna flugmannsins sem lést. Ein heimild segir niðurstöðu komna í málið en önnur að næsta skref verði ákveðið þegar ljóst verði hvort eitthvað, og þá hversu mikið, fáist úr annarri launaþegatryggingu sem Mýflug hafi verið með. Sú upphæð verði þó ekki nálægt þeirri fjárhæð sem líftryggingin sem vantaði hefði gefið. „Nei, ég vil það ekki,“ ítrekar formaður FÍA er hann er spurður hvort hann vilji ekki upplýsa stöðu bótamálsins. „Mér finnst hins vegar þessi umfjöllun ykkar á köflum hafa farið langt yfir strikið.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Sjá meira