Yfirmenn lögreglu á fundi í Hvalfirði þegar upp úr sauð Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 25. október 2014 12:52 Eftir nokkra mánaða mótmæli sauð upp úr við þingsetningu 20. janúar 2009. Vísir/Anton
Nokkrir yfirmenn lögreglu sátu fund í Hvalfirði þegar upp úr sauð í Búsáhaldabyltingunni fyrir setningu Alþingis í janúar 2009. Lögreglustjóra hafði þó verið bent á hugsanlega væri rétt að senda þá ekki út úr bænum á þessum tímapunkti. Þetta kemur fram í samantekt á skipulagi lögreglunnar í búsáhaldabyltingunni. Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, sá um að vinna samantektina en þar er farið yfir mótmæli á árunum 2008-2011. Haustið 2008 tók hópur fólks að mótmæla stjórnvöldum og þeim veruleika sem blasti við eftir hrunið. Eftir nokkra mánaða mótmæli sauð upp úr við þingsetningu 20. janúar 2009. Þá söfnuðust þúsundir manna saman fyrir framan Alþingi. Í skýrslunni er sagt frá því að þann dag hafi yfirlögregluþjónn almennrar löggæslu, ásamt aðstoðaryfirlögregluþjónum þeirrar deildar verið sendir á ársfund sem haldinn var í Hvalfirði. Sú spurning var borinn upp við Stefán Eiríksson lögreglustjóra hvort að rétt væri að hætta við fundinn vegna þingsetningarinnar og væntanlegra mótmæla en hann hafi ákveðið að halda fundinn þar sem nægur fjöldi stjórnenda væri til staðar. Mótmælendur hófu að safnast saman við Alþingishúsið um morguninn og stóðu mótmælin þar til fimm morguninn eftir. Í skýrslunni segir að mikið mæddi á lögreglumönnum og stjórnendum aðgerða en kalla þurfti til sérsveit og mannskap frá lögreglunni á Suðurnesjum til að aðstoða. Alls tóku ríflega tvö hundruð lögreglumenn þátt í aðgerðunum. Í skýrslunni er lýst upplifun lögreglumanna af mótmælunum en töldu þeir mótmælendur hafa verið óvenju herskáa og því hafi þeir beitt piparúða og kylfum. Þá segja þeir þreytu og máttleysi hafa sagt til sín enda voru þeir án matar og drykkjar allan daginn.
Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira