Geðrænir sjúkdómar Björn Vigfússon skrifar 25. september 2014 07:00 Því miður virðist enn vera við lýði á tuttugustu og fyrstu öldinni að þorri landsmanna dæmi andlega veikt fólk aumingja og jafnvel blóðsugur á kerfinu sem ætla sér bara að lifa á bótum og nenna ekki að vinna. En ég segi við það fólk, í guðanna bænum, opnið augun og kynnið ykkur málið áður en þið setjið ykkur í sæti dómara. Er ekki nóg að þetta veika fólk hefur dottið út af vinnumarkaðnum út af sínum geðrænu veikindum? Við getum öll fengið krabbamein og aðra sjúkdóma, líka geðsjúkdóma og ég er viss um að öll höfum við fengið einkenni um þunglyndi og flest jafnað okkur, en svo eru einstaklingar sem ná ekki að jafna sig og þurfa hjálp, en því miður eru þessir einstaklingar oft lengi að koma sér til læknis, því þeir sjálfir eru með fordóma um að þetta sé bara aumingjaskapur og ætla að hrista þetta af sér. Að endingu þegar þetta góða fólk fer loksins til læknis er það oft orðið mjög veikt og er löngu búið að missa tökin á lífi sínu, en oftast byrjar þetta góða fólk á því að fara til síns heimilislæknis sem í flestum tilfellum hefur litla þekkingu á geðrænum sjúkdómum. Sem betur fer á þetta ekki við alla heimilislækna, en því miður marga og í mjög mörgum tilfellum gengur þetta fólk út frá heimilislækni með lyfseðil upp á kvíðaslakandi lyf. Margir læknar senda sinn sjúkling til geðlæknis sem því miður mjög oft ákvarðar hvaða lyf á að setja sjúklinginn á, án þess virkilega að ráðast á rót veikindanna, sem geta oft verið andleg eða eitthvert slæmt tilfelli úr æsku sem var aldrei uppgert og þá þarf sálfræðing til, en viðtal hjá sálfræðingi og geðlækni kostar mikið og ekki fyrir alla að sækja reglulega tíma til þeirra. Mjög margt fólk með geðræn veikindi þarf að velja á milli þess að sækja lyfin sín eða að fara í sálfræðitíma hjá sínum lækni, eða eiga fyrir skuldum, eða jafnvel að eiga fyrir mat handa börnunum sínum. Efnameira fólk hefur efni á sálfræði- eða geðlæknisþjónustu enda hefur það verið sannað að í okkar íslenska samfélagi eru geðrænir sjúkdómar langflestir hjá láglaunafólki í þessu landi, og á meðan hið íslenska samfélag viðurkennir ekki þetta stærsta vandamál þjóðarinnar með meira en fimmtíu sjálfsmorð á ári og stjórnmálamenn stinga hausnum í sandinn og segja aumingjaskapur, þá mun þetta verða að vandamáli sem mun bara stækka og stækka með skelfilegum afleiðingum fyrir okkar fallega litla íslenska samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Öll með? – 4.020 kr. hækkun fyrir skatt eftir 16 mánuði! Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Að mæðra barn í hjarta sínu Hólmfríður Anna Baldursdóttir Skoðun Jákvæður orðaforði eykur hamingju og vellíðan Helga Fjóla Sæmundsdóttir Skoðun Vekjum risann Guðmundur Karl Brynjarsson Skoðun Katrín Jakobsdóttir forseti Viðar Pálsson Skoðun Veðrið, veskið og Íslendingurinn María Rut Kristinsdóttir Skoðun Mýtan um launin Elsa Nore Skoðun Samt kýs ég Katrínu Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Látum hjartað ráða för Sigrún Traustadóttir Skoðun Forysta til framtíðar Hópur presta Skoðun Skoðun Skoðun Hvað getur Ísland gefið öðrum þjóðum? Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Veðrið, veskið og Íslendingurinn María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Að mæðra barn í hjarta sínu Hólmfríður Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Jákvæður orðaforði eykur hamingju og vellíðan Helga Fjóla Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Öll með? – 4.020 kr. hækkun fyrir skatt eftir 16 mánuði! Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Látum hjartað ráða för Sigrún Traustadóttir skrifar Skoðun Vekjum risann Guðmundur Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Katrín Jakobsdóttir forseti Viðar Pálsson skrifar Skoðun Þjóðarsátt líka fyrir fatlað fólk Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Í ker eða kistu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson skrifar Skoðun Gummi Kalli, einlægur, skemmtilegur og frábær leiðtogi Arnar Ragnarsson skrifar Skoðun Ræstingafyrirtæki og starfsmannaleigur í jafnréttisparadísinni Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Forysta til framtíðar Hópur presta skrifar Skoðun Fyrir hverja eru skoðanakannanir? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Án varna, ekkert frelsi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Mýtan um launin Elsa Nore skrifar Skoðun Samt kýs ég Katrínu Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Viltu vera memm? Birna Dröfn Birgisdóttir skrifar Skoðun Tíminn að renna út Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Átt þú rétt á sumarbústað? Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vonbrigði fyrir þá verst settu Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Fögnum unnum sigrum og aðlögumst nýjum tímum Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Baldur Þórhallsson er minn forseti! Sara Dögg Svanhildardóttir skrifar Skoðun Baráttan heldur áfram Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Forsetinn minn 2024 Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Vanefndir Flugakademíu Íslands Gunnar Hjörtur Hagbarðsson skrifar Skoðun Hippókratesareiðurinn þarf að verða að veruleika Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Ólafur og Katrín á RÚV Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Úthvíld ríkisstjórn? Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson skrifar