Sandkassi fyrir börnin í nýrri verslun Freyr Bjarnason skrifar 17. desember 2014 11:30 Bjarni Þór og Dóra Sif, ásamt dóttur sinni, hjá sandkassanum sem hefur slegið í gegn eftir að búðin var opnuð. Vísir/GVA
Bjarni Þór Viðarsson, atvinnumaður hjá danska knattspyrnuliðinu Silkeborg, kærasta hans, Dóra Sif Ingadóttir, og móðir hennar, Drífa Hilmarsdóttir, opnuðu á dögunum barnafatabúðina Bíumbíum. Hún hefur þá sérstöðu að bjóða upp á sandkassa frá fyrirtækinu Krummu fyrir börnin sem þangað koma með foreldrum sínum. Í honum er botnfylli af sandi, svo að börnin verði nú ekki öll útötuð í honum. „Útgangspunkturinn þegar við ákváðum að opna búð var að við vildum vera með aðstöðu fyrir börnin svo að foreldrarnir gætu verslað í rólegheitum,“ segir Dóra Sif, sem á sjálf tveggja og hálfs árs dóttur með Bjarna Þór. „Fólki fannst við brjáluð þegar við vorum að útskýra þetta með sandkassann áður en við opnuðum en þetta virkar fáránlega vel og foreldrar eiga oft erfitt með að koma börnunum sínum út aftur,“ segir hún. „Slagorðið okkar er að verslunin sé fyrir mikilvægasta fólkið. Við viljum skapa upplifun líka fyrir börn að koma hingað.“ Hvað staðsetningu búðarinnar varðar í Síðumúla 13 lögðu þau áherslu á að hægt væri að aka alveg upp að henni, þannig að auðveldara væri fyrir foreldrana að komast þangað með lítil börn. Í Bíumbíum fást skandinavísk föt í mildum litum fyrir börn á aldrinum 0 til 8 ára og franskir fylgihlutir, þar á meðal skart í hárið, inniskór, vegglímmiðar og Barbapabba-næturljós. „Við höfum fengið ótrúlega góðar viðtökur og fólk hefur verið rosalega ánægt,“ segir Dóra Sif, sem fer aftur út til Danmerkur eftir jól með Bjarna Þór. Mamma hennar annast reksturinn í fjarveru þeirra. „Mamma er búin að vera að setja upp búðir frá því ég man eftir mér. Ég var alltaf með henni í vinnunni og fékk rosalega mikinn áhuga á þessu. Núna langaði okkur að prófa að gera eitthvað sjálfar,“ segir hún hress en mamma hennar hefur m.a. starfað í Pennanum og Epal. Sjálf nýtir Dóra Sif í búðinni reynslu sína af kaupum á vönduðum vörum í Danmörku og í Belgíu, þar sem Bjarni Þór hefur einnig spilað.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Fleiri fréttir Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Sjá meira