Iker Romero hættir í vor Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. apríl 2014 11:30 Vísir/Getty
Spánverjinn Iker Romero, leikmaður Füchse Berlin, ætlar að leggja skóna á hilluna þegar tímabilinu lýkur í þýsku úrvalsdeildinni. „Það hefur margsinnis verið sárt að tilkynna brotthvarf leikmanna frá félaginu en þetta er það erfiðasta sem ég hef þurft að gera í mínu starfi,“ sagði Bob Hanning, framkvæmdarstjóri Füchse Berlin, við þýska fjölmiðla. „Við missum nú merkan íþróttamann sem hefur tekið þátt í því að móta félagið undanfarin þrjú ár. Hann færði okkur hugarfar sigurvegarans og var fyrirmynd fyrir leikmenn og alla aðra hjá félaginu - líka mig.“ Romero hefur verið lykilmaður með liðinu í vetur og spilað meira en fyrri tímabil vegna meiðsla í leikmannahópi Berlínarrefanna. Hann varð bikarmeistari með liðinu fyrr í mánuðinum en það var fyrsti titill í sögu félagsins. Füchse Berlin stefnir svo að því að vinna EHF-bikarkeppnina í næsta mánuði en úrslitahelgin fer fram á heimavelli. Romero, sem hefur orðið heimsmeistari með Spáni, lék með Ciudad Real og Barcelona í heimalandinu áður en hann kom til Þýskalands. „Þetta er erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið í mínu lífi. Þessi átján ár mín sem handboltamaður voru eins og atján mánuðir. Ég hef lengi íhugað næstu skref og tel þetta rétt fyrir mig, minn líkama og mína fjölskyldu.“ Síðasti leikur Romero með Füchse Berlin verður gegn Kiel þann 24. maí.
Handbolti Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Sjá meira