Hlynur besti varnarmaðurinn í sænsku deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2014 22:15 Hlynur Bæringsson. Vísir/Valli
Hlynur Bæringsson, leikmaður Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta, hefur verið valinn besti varnarmaðurinn í sænsku deildinni á þessu tímabili en þetta kemur fram á heimasíðu sænska körfuboltasambandsins. Þetta er annað árið í röð sem Hlynur hlýtur þessa flottu útnefningu en hann hefur farið fyrir liði Drekanna á miklum umbrotatímum þar sem liðið þurfti að sjá á eftir sterkum leikmönnum. Hlynur hélt upp á verðlaunin með því að eiga flottan leik þegar Sundsvall Dragons vann 88-81 sigur á Uppsala Basket í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar og minnkaði þar með muninn í 2-1. Hlynur var með 17 stig, 13 fráköst og 3 stoðsendingar en hann fékk 25 í framlag fyrir frammistöðu sína. Hlynur var með 14,6 stig, 10,9 fráköst, 3,4 stoðsendingar að meðaltali í deildarkeppninni og framlag upp á 22,6 í leik. „Það þarf ekki að telja saman tölufræðina til að meta hvað Hlynur gerir fyrir liðið sitt því það er nóg að horfa. Það skiptir ekki máli hvort að það sé fyrsta eða síðasta mínútan í leikjunum. Hann spilar alltaf af mikill ástríðu og er tilbúinn að fórna öllu fyrir sigur," segir í fréttinni um Hlyn og þar stendur líka: „Hann spilar vörnina af krafti og klókindum og skapar fullt af aukasóknum fyrir liðið sitt."
Körfubolti Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Á sársaukafullar minningar af HM Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira