Ekki næg arðsemi í rekstri Landsbankans Þorbjörn Þórðarson skrifar 7. nóvember 2014 19:23
Landsbankinn skilar of lítilli arðsemi og of stór hluti hagnaðarins er vegna matsliða og óreglulegra liða, að sögn bankastjórans Steinþórs Pálssonar. Bankinn hefur ráðið alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið McKinsey & Co. til að hagræða í rekstrinum. Landsbankinn kynnti í morgun uppgjör sitt vegna fyrstu 9 mánaða ársins. Bankinn er að nær fullu í eigu skattgreiðenda og eini ríkisbankinn á markaði. Hagnaður á fyrstu níu mánuðum 2014 nam 20 milljörðum króna eftir skatta. Innlán frá viðskiptavinum hafa vaxið um 9% á árinu og útlán um 6%. Eigið fé bankans er nú 241 milljarður króna og stendur í stað miðað við árslok 2013 þrátt fyrir að Landsbankinn hafi greitt eigendum sínum, aðallega íslenska ríkinu, tæpa 20 milljarða króna í arð á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Eiginfjárhlutfall bankans er nú 27,1% og arðsemi eigin fjár eftir skatta var 11,4% á tímabilinu.Hversu stór hluti hagnaðarins er vegna matsliða eins og vegna sölu á eignarhlutum í aflagðri starfsemi og endurmats á lánasöfnum? „Það er mjög stór hluti. Af tekjum er það um 30-40 prósent,“ segir Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans.Virðisaukning útlána of stór hluti hagnaðar Fram kom í kynningu Steinþórs á upppgjörinu að þegar teknir væru út óreglulegir liðir þá væri arðsemin of lítil. Of stór hluti hagnaðar væri vegna aukningar á verðmæti útlána. Eðlilegra væri að útlánaáhætta ylli kostnaði á reikstrarreikningi bankans en ekki tekjum. „Bankarnir hafa og Landsbankinn hefur verið að ná fram hagnaði af hlutabréfum og skuldabréfum hér áður og nú af útlánum. Þegar þessu er sleppt þá er hagnaðurinn mun minni og við þurfum að huga að því hvernig er hægt að mæta því til framtíðar,“ segir Steinþór. Bankinn hefur ráðið teymi frá alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu McKinsey og Company til að finna leiðir til að hagræða í rekstrinum. Vinnan miðar að því að bæta þjónustu við viðskiptavini, einfalda vinnuferla og draga úr kostnaði. Stefnt er að því að klára þá vinnu á fyrsta ársfjórðungi næsta árs.
Tengdar fréttir Gætu þurft að sitja á gjaldeyri og draga úr lánum til útvegsins Ef samkomulag milli Landsbankans og slitabús gamla bankans, LBI, næst ekki í gegn gæti Landsbankinn þurft að draga úr nýjum útlánum í gjaldeyri til útvegsfyrirtækja. Þetta gæti skaðað bankann að sögn bankastjórans. 7. nóvember 2014 18:15 Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira
Gætu þurft að sitja á gjaldeyri og draga úr lánum til útvegsins Ef samkomulag milli Landsbankans og slitabús gamla bankans, LBI, næst ekki í gegn gæti Landsbankinn þurft að draga úr nýjum útlánum í gjaldeyri til útvegsfyrirtækja. Þetta gæti skaðað bankann að sögn bankastjórans. 7. nóvember 2014 18:15