Upplifun í sveitasælunni Gunnþóra Gunnarsson skrifar 2. nóvember 2014 10:00 Þau hjón hafa byggt garðinn upp sem ætigarð, hafa fellt þar 12 stór tré og skipt þeim út fyrir matjurtabeð og lítið gróðurhús, ávaxtatré og berjarunna. vísir/GVA
Þau Gísli Egill og Inga Elsa eru úti í garði. Þótt nóvember sé að bresta á eiga þau þar enn margar tegundir kryddjurta ásamt rótargrænmeti. „Við náum í krydd hingað fram eftir vetri, meira að segja í jólamatinn,“ segir Inga Elsa. „Já, það er full ástæða til að nýta garðana lengur en yfir hásumarið,“ tekur Gísli Egill undir. Inga Elsa segir þau byrja að skipuleggja matjurtabeðin fljótlega eftir áramót. „Sumt sem við ræktum eru fastir liðir en hluti af beðinu er lagður undir eitthvað nýtt, stundum heppnast það og stundum ekki. Þannig lærir maður á hlutina.“ Í eldhúsinu liggur glæný bók þeirra hjóna á borði, Sveitasæla. Gullfalleg frá upphafi til öftustu síðu. Hún er sjálfstætt framhald af Góður matur gott líf – í takt við árstíðirnar, sem kom út 2011 og fékk tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Eins og titillinn ber með sér er nýja bókin tengd því sem sveitin hefur upp á að bjóða í mat og upplifun. Þau hjón eru nefnilega landsbyggðartúttur líka, eiga hús á fjörukambi við ósa Blöndu, þar rækta þau annan ætigarð og hafa aðgang að villtri náttúru og afurðum bænda. Gísli Egill tekur fram að þau borði allt og haustið sé líka sláturtíð. Hann mælir með að fólk velji aðra bita en þá algengustu og telur ærkjöt vanmetið, einnig merg, kinnar og ferska tungu úr nautgripum. „Við erum með ákveðna hugmyndafræði sem gengur út á að nýta vel hráefnin í kringum okkur á hverjum tíma,“ segir Inga Elsa. „Það skiptir máli að börnin alist upp við það og taki þátt í þeim lífsstíl. Okkar land er einstakt, við viljum draga fram gæði hverrar árstíðar og njóta þess í matargerð og úti í náttúrunni.“ Þau hjón búa meira að segja til sitt eigið salt úr sjónum og mylja jurtir saman við það, bæði villtar og heimaræktaðar. Þannig fá þau salt með mismunandi bragði. „Auðvitað svarar svona föndur ekki kostnaði,“ segir Inga Elsa. „En það auðgar lífið og gerir það skemmtilegra.“Gulróta- og rauðrófusúpaHanda 4 til 6 Holl og góð grænmetissúpa tilvalin á haustdögum. Ef eitthvað verður eftir af henni, er upplagt að taka restina með sér í vinnuna daginn eftir og borða í hádeginu því súpan fer yfirleitt dagbatnandi. 4 msk. ólívuolía 1 msk. kóríanderfræ 2 laukar, fínsaxaðir 1 rautt chili-aldin, fínsaxað 2 timjangreinar 1 lárviðarlauf 750 g gulrætur, afhýddar og rifnar niður 450 g rauðrófur, afhýddar og rifnar niður 11/2 lítri kraftmikið kjúklingasoð 1 msk. rauðvínsedik Salt og svartur pipar Sýrður rjómi Hitið olíuna í potti og léttristið kóríanderfræin. Bætið lauknum út í og látið krauma í 10 mínútur. Setjið síðan chili, timjangreinar, lárviðarlauf, gulrætur, rauðrófubita, kjúklingasoð og edik saman við. Látið malla við vægan hita í 25 mínútur. Takið timjangreinar og lárviðarlauf upp úr súpunni og maukið hana með sprota. Saltið og piprið og setjið smáslettu af sýrðum rjóma út í.Epla- og rauðrófukrapi Í bókinni okkar Sveitasælu erum við með nokkrar uppskriftir af krapís sem er búinn til úr ferskum villijurtum. Ísinn er einungis hægt að búa til að sumri. En hér er uppskrift að epla- og rauðrófukrapa sem má búa til allan ársins hring. Í kringum jólin bjóðum við upp á grenikrapa sem er búinn til með frystum grenitoppum. Þá tínum við snemma sumars og frystum til notkunar síðar. Krapa er best að borða innan nokkurra daga frá lögun. 200 ml vatn 90 g sykur 3 græn epli, afhýdd og fínt rifin 1 sítróna, safinn 125 g rauðrófa, fínt rifin Leysið sykurinn upp í volgu vatni. Kælið sykurvatnið. Rífið niður eplin og vætið maukið með sítrónusafa. Bætið rifinni rauðrófu saman við. Maukið með sprota. Þrýstið maukinu í gegnum gróft sigti. Ef þið viljið fá mýkri áferð er betra að nota fínt sigti. Setjið í skál og frystið. Hrærið upp í krapanum þrisvar, fjórum sinnum á hálftíma fresti.
Mest lesið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Sjá meira