Laug því í lögreglu að sér væri haldið nauðugum Jakob Bjarnar skrifar 13. febrúar 2014 11:08 Stórfurðuleg forsaga máls sem leiddi til þess að lögreglan á Selfossi gerði upptækar rúmlega 20 kannabisplöntur á Stokkseyri.
Vísir greindi frá því í gær að lögreglan á Selfossi gerði upptækar 22 kannabisplöntur í húsi á Stokkseyri. Ýmislegt hefur nú komið uppúr dúrnum sem gerir málið allt hið furðulegasta. Lögreglan fór upphaflega í húsið í allt öðrum erindagjörðum, en til hennar hafði komið átján ára drengur sem fullyrti að honum hafi verið haldið föngnum í húsinu. Vísir ræddi við húsráðanda sem hafði sérkennilega sögu að segja. Í húsinu á Stokkseyri búa hjón ásamt 15 ára syni sínum. Um jól tóku þau að sér 18 ára dreng í fóstur. Þeim sinnaðist með þeim afleiðingum að ungi maðurinn leitaði til lögreglu skömmu eftir hádegi í gær og hélt því fram að honum hafi verið haldið nauðugum í herbergi í íbúðarhúsi parsins á Stokkseyri og þar væri hann beittur ofbeldi og hótunum. Lögreglan á Selfossi hefur sent frá sér tilkynningu vegna þessa furðulega máls þar sem segir: „Lögregla greip þegar í stað til viðeigandi ráðstafana og fór á vettvang og handtók parið sem var flutt til yfirheyrslu á Selfossi. Tæknideild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi tæknirannsókn á vettvangi. Við yfirheyrslur sakborninga, vitna og að teknu tilliti til niðurstöðu tæknirannsóknar tók rannsókn málsins nýja stefnu. Grunur vaknaði um að meintur brotaþoli hefði sagt ranglega frá frelsissviptingunni. Hann var handtekinn í framhaldinu og fékk réttarstöðu sakbornings og mun verða kærður fyrir rangar sakargiftir. Yfirheyrslum yfir honum mun væntanlega ljúka í dag. Parið var látið laust í gærkvöldi eftir yfirheyrslur. Karlinn viðurkenndi að hafa staðið að ræktun 22ja kannabisplantna sem fundust í húsinu. Rannsókn málsins er langt komið og lýkur væntanlega í dag.“ Drengurinn sem sagt laug upp á hjónin því að hafa haldið sér nauðugum en hann er nú sjálfur í haldi lögreglu og er yfirheyrður vegna málsins. Það liggur fyrir. Í samtali við Vísi segir konan sem við sögu kemur ekki vita hvaðan á sig stóð veðrið. Lögreglan bankaði uppá, vildi rannsaka málið en fann í híbýlunum fáeinar kannabisplöntur. Þvagsýni var tekið af öllu heimilisfólkinu, parinu og 15 ára syni þeirra. Ekkert kom í ljós nema í heimilisföðurnum sem viðurkenndi fúslega að eiga plönturnar. Þær notar maðurinn til að slá á verki, sem hafa þjakað hann árum saman. Lyf sem hann hefur tekið við því hafa ekki farið vel í hann, hafa kostað hann magasár með þeim afleiðingum að hann er farinn að kasta upp blóði. Kannabisið er, að sögn konunnar, hans aðferð til að leita nýrra leiða. Ágreiningurinn sem upphaflega varð til þess að það fauk í drenginn sem var í fóstri hjá fjölskyldunni var meðal annars sá að hann vildi fá sér af kannabisplöntum auk þess sem hann átti það til að skilja óhreina sokka eftir um allt hús.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Sjá meira