Halda styrktartónleika eftir sviplegt dauðsfall Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 14. nóvember 2014 12:32 Kristinn Freyr, Kristín Helga og Ólöf Erla Fram undan eru flutningar til Eyja því þar er fjölskylda Kristins Freys. Vísir/Ernir „
Ég er sjómaður en hef verið frá vinnu utan heimilis síðan í febrúar. Dæturnar hafa þurft á mér að halda,“ segir Kristinn Freyr Þórsson sjómaður sem missti konu sína, Ólöfu Birnu Kristínardóttur, í byrjun september. Dæturnar, Kristín Helga og Ólöf Erla, eru þriggja og eins árs. Ólöf Birna hafði hormónatengdan sjúkdóm sem fyrst varð vart þegar hún fór á pilluna, að sögn Kristin Freys. „Hún fór seint til læknis og var þá komin með æxli í brjósti og nára en með réttum lyfjum var hún nær laus við þau árið 2010,“ lýsir hann og heldur áfram: „Þegar hún varð ólétt fyrst varð hún að hætta á lyfjunum og æxlin komu aftur, læknarnir lögðu ekki í að taka þau, enda voru þau til friðs. Á meðgöngu yngri dótturinnar seig á ógæfuhliðina, æxlin stækkuðu og fjölguðu sér og áformað var að nema þau burtu, barnið var tekið sjö vikum fyrir tímann en læknar töldu skurðaðgerð of áhættusama. Þá fóru að myndast sár í húðinni með sýkingum og blæðingum. Samt var Ólöf ótrúlega kraftmikil og jákvæð. Það bjóst enginn við að þetta færi svona.“Ólöf Birna, Kristinn Freyr og dæturnar á góðri stundu.Bjartsýnin jókst í ágúst er læknarnir náðu að loka sárinu, að sögn Kristins Freys. „Við skruppum þá á æskuslóðir Ólafar Birnu í Hrútafirðinum. Þann 27. ágúst, daginn sem við komum til baka, hélt hún að hún væri með ælupest en konu frá Heimahlynningu leist ekki á blikuna og fór með hana upp á Kvennadeild. Daginn eftir var hún komin í öndunarvél og stuttu seinna var hún dáin. Það var rosalegt áfall.“ Fram undan eru flutningar til Eyja hjá Kristni Frey og dætrum því þar er öll fjölskyldan hans. „Ég reikna með að fara á sjóinn aftur,“ segir hann. „Ef það gengur ekki upp fer ég að læra eitthvað annað.“ Á sunnudaginn klukkan 16 verða styrktartónleikar vegna þessarar litlu fjölskyldu í Guðríðarkirkju í Grafarholti, á vegum Kirkjukórs Lágafellssóknar. Þeir nefnast Jólaljós. Fjöldi mætra tónlistarmanna kemur þar fram og má nefna Ragga Bjarna, Bjarna Ara, Birgi Haraldsson rokkara og Kristínu R. Sigurðardóttur sópransöngkonu. Þeim sem ekki komast á tónleikana en vilja láta eitthvað af hendi rakna er bent á reikning kirkjukórsins 0315 13 300516 kennitalan er: 551190 1109
Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ólétt 52 ára Lífið Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Lífið Fleiri fréttir Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Sjá meira