Smala fé snemma í Kelduhverfi "Viljum hafa vaðið fyrir neðan okkur" 20. ágúst 2014 09:18 Fjárbændur í kelduhverfi vilja vera á undan náttúrunni ef Jökulsá skyldi flæða yfir sandana.
Fjárbændur í Kelduhverfi í Norðurþingi hafa síðustu daga verið að ná fé af svæðinu norðan Ásbyrgis, þar sem Jökulsá á Fjöllum kemur niður, í varúðarskyni ef flóð hlypi í ána vegna eldgoss í Bárðarbungu. Bændur smala óvenju snemma í ár af þessum sökum. Jón Halldór Guðmundsson, bóndi á Ærlæk í Kelduhverfi, á töluvert af fé á sléttlendinu þar sem Jökulsá breiðir úr sér. Vill hann hafa vaðið fyrir neðan sig ef ske kynni að brysti á með hinu versta. Þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gær var hann í eftirleitum og hafði þá deginum áður náð allmörgu fé nær heimahúsum og af hættusvæði. „Við tökum þetta alvarlega og getum lítið annað gert en að smala fé af svæðinu. Þetta er nokkuð víðfeðmt svæði hérna í Kelduhverfinu og við viljum bara vera vissir um það að verða á undan náttúrunni. Þegar viðbúnaðarstig var hækkað í appelsínugult í hádeginu á mánudag þá ákváðum við að ná í fé og koma því á svæði,“ segir Jón Halldór. Bændur á Ærlæk og Ærlækjarseli hafa verið að ná í fé af þessu svæði síðustu tvo daga og einnig hafa tvö stór hrossastóð, sem voru örlítið vestur af Ásbyrgi, verið færð til á öruggara svæði ef til hamfaraflóðs kæmi.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira