Innlent

Þjónusta við fatlaða könnuð

Bjarki Ármannsson skrifar
Ellen Calmon er formaður Öryrkjabandalagsins.
Ellen Calmon er formaður Öryrkjabandalagsins. Vísir/Valgarður
Ný rannsókn á aðstæðum og reynslu íbúa sveitarfélaga sem eru fatlaðir eða öryrkjar verður kynnt á málþingi Öryrkjabandalagsins á Grand Hóteli í dag. Rannsóknin var unnin í tilefni af endurskoðun á yfirfærslu málefna fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga.

Meðal þeirra spurninga sem leitað var svara við er hvaða þjónustu sveitarfélaga fatlað fólk nýtir sér. Þá voru könnuð viðhorf almennings til þjónustu sveitarfélaga við fatlaða.

Öryrkjabandalagið lagði áherslu á að rannsókninni yrði lokið fyrir næstkomandi sveitarstjórnarkosningar þannig að nýta mætti niðurstöður hennar í tengslum við þær. Málþingið stendur yfir frá 13 til 17.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×