Stór koparþjófnaður í Reykjanesbæ Baldvin Þormóðsson skrifar 7. febrúar 2014 15:15 Loftmynd af Reykjanesbæ. visir/gunnar
Miklu magni af kopar var stolið frá íslenskum aðalverktökum nýverið. Er áætlað að rúmt tonn hafi horfið með þessum hætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þjófnaðurinn uppgötvaðist nokkru eftir að hann er talinn hafa átt sér stað og var lögreglunni á Suðurnesjum tilkynnt um hann. Brotist var inn í bygginu á athafnasvæði ÍAV við malbikunar- og steypustöðina að Ferjutröð í Reykjanesbæ. Þjófarnir komust inn með því að spenna upp hurð. Talsvert af koparnum var geymt í kössum, sem þjófarnir höfðu á brott með sér. Einnig hafði koparköplum verið rúllað niður af keflum og þeir teknir. Er talið að verðmæti koparsins sem brotamálms sé um 500 krónur á hvert kíló, en verðmæti koparsins í köplunum sé mun meira. Einnig hafði verið brotist inn í tvær aðrar byggingar á svæðinu. Úr annarri þeirra var stolið brettalyftu, en engu úr hinni. Talið er að brotist hafi verið inn í byggingarnar og stolið úr þeim þann 25. eða 26. janúar. Lögregla biður alla þá sem geta gefið upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir á athafnasvæði ÍAV á þessum tíma að hafa samband í síma 420-1700.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Sjá meira