Innlent

„Dæmi um að börn hafi villst"

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Olga segir foreldra í Grafarvogi ósátta með skort á úrræðum í almenningssamgöngum.
Olga segir foreldra í Grafarvogi ósátta með skort á úrræðum í almenningssamgöngum.
„Þetta er skrýtið skref aftur á bak, það eru dæmi um að börn hafi verið að villast vegna þess að leið strætó var breytt,“ segir Olga B. Gísladóttir, formaður foreldrafélags Kelduskóla í Grafarvogi. Hún segir foreldra vera mjög ósátta með þá staðreynd að rekstri frístundabíls á vegum Fjölnis og Reykjavíkurborgar væri hætt í haust og nú – til þess að bæta gráu ofan á svart – hafi Strætó ákveðið að breyta leið 6, þannig að krakkar sem æfa hjá íþróttafélaginu Fjölni eiga enn erfiðara með að nota almenningssamgöngur til þess að komast á æfingar.

„Eftir að frístundabíllinn hætti að ganga ákváðu margir foreldrar að nýta sér strætó til að koma börnum sínum frá Kelduskóla og í Egilshöll á æfingar. Leið 6 stoppaði rétt hjá Egilshöll, þannig að það gekk ágætlega. Svo var ákveðið að breyta leiðinni og nú stoppar strætó tæpum kílómetra frá Egilshöll, sem er ansi langt labb fyrir yngstu börnin,“ útskýrir Olga.

Hún segir ákvörðunina hafa komið verulega á óvart og borið brátt að. „Þetta virðist vera vanhugsuð aðgerð sem kom verulega á óvart. Hún var bara sett inn á vefsíðu Strætó og ekkert auglýst frekar,“ segir Olga. Hún segir nýja stoppistöð sem strætó noti ekki vera merkilega. „Engin aðstaða er í kringum stoppistöðina, ekkert strætóskýli, bara staur við veginn og grasblettur á kantinum sem þau standa á.  Engin gönguleið eða tenging er frá stoppistöðinni og í undirgöngin, sem þau þurfa að nota.  Þau eru því að renna í hálku og bleytu þarna,“ útskýrir Olga.

Ákvörðun Strætó hefur áhrif á marga, foreldrar þurfi að hætta fyrr í vinnu og aðrir hafi neyðst til að taka börnin úr íþróttum. „Niðurstaðan er sú að foreldrar eru að keyra á æfingar í mjög auknum mæli, hætta fyrr í vinnu o.fl.  Einhverjir hafa látið börn sín hætta að æfa út af þessu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×