Dagur: Hefur orðið til þess að menn hætta spila með landsliðum Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. mars 2014 10:00 Dagur Sigurðsson. Vísir/Getty
Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska 1. deildar liðsins Füchse Berlín, hefur vakið mikla athygli fyrir langt viðtal sem hann fór í á þýska handboltavefmiðlinum Handball-world.com. Þar bendir Dagur á beinar afleiðingar leikjaálagsins sem er gífurlegt hjá bestu handboltaliðum heims. Þar telur hann upp, ásamt blaðamanninum, nokkur alvarleg og mjög alvarleg meiðsli 24 leikmanna í efstu fimm liðum þýska boltans á síðustu tveimur árum. Þar á meðal eru Íslendingarnir Alexander Petersson og Aron Pálmarsson. „Við tókum bara skyttustöðurnar inn í þetta þannig að þarna er aðeins um að ræða toppinn á ísjakanum,“ segir Dagur um málið við Fréttablaðið. „Þetta eru aðeins þrjár leikstöður og ekki um að ræða einhverjar tognanir heldur alvarleg meiðsli.“Vísir/GettyNBA-leikjaálag Dagur rekur fjölgun meiðsla beint til aukins leikjaálags en fyrir utan það að leikirnir eru orðnir mun fleiri eru þeir einnig orðnir hraðari. „Evrópukeppni landsliðs hófst fyrir 20 árum og þar bættist við annað stórmót. Riðlakeppni Meistaradeildarinnar er stærri og þá er komin riðlakeppni í hinar Evrópukeppninnar. Svo þurfa meistararnir að fara á heimsmeistaramót félagsliða og fleira. Ofan á þá er hraða miðjan orðin svipað gömul og EM,“ segir Dagur en hlutirnir voru öðruvísi þegar hann var að byrja og lengi vel framan af ferlinum. „Þá var engin hröð miðja. Maður gat tekið sér tíma í að fagna og hlaupið að áhorfendum og gefið öllum „five“. Nú er leikurinn hraðari og leikjaálagið eins og í NBA-deildinni. Munurinn er sá að NBA er með úrslitakeppni þannig að tímabilið þar er langt frá því að vera eins kraftmikið og í handboltanum. Enda eru leikmennirnir orðnir örmagna. Núna getum við tapað úti um allt. Við töpuðum í Eisenach og Minden og Kiel tapaði í Magdeburg til dæmis. Það er bara vegna þess að leikmennirnir eru búnir á því,“ segir Dagur.Vísir/Getty15 færri leikir Aukinn hraði í handboltanum hefur gert hann að sjónvarpsvænni íþrótt og fjöldi leikja leiðir til hærri launa leikmanna sem fá margir hverjir ansi vel borgað fyrir sín störf. Til að draga úr álaginu þyrfti engu að síður, að mati Dags, að fækka leikjum um fimmtán á hverju tímabili. „Líklega þyrfti deildin að vera 16 liða, Meistaradeildin þyrfti aðeins að minnka og stórmótið ætti auðvitað að vera á fjögurra ára fresti þannig leikmenn fái frí svona við og við. En til þess að þetta gerist þurfa allir að koma að borðinu og standa saman. Þ.e. þýska deildin, EHF og IHF. En ég þekki þennan bransa ágætlega og sé það ekkert gerast,“ segir Dagur sem hefur miklar áhyggjur af álaginu og hvað það er að gera mönnum eins og meiðslalistinn sýnir. „Þetta hefur orðið til þess að menn hætta spila með landsliðum. Hjá Þýskalandi eru einhverjir 6-8 sterkir spilarar sem hafa ekkert spilað með því undanfarin ár í þeim tilgangi að reyna að lengja ferilinn. Menn eru einfaldlega að berjast fyrir því að halda ferlinum á lífi. Menn verða að fara að horfa á þetta frá sjónarhorni leikmannanna,“ segir Dagur Sigurðsson.Vísir/GettyErum á pari Berlínarrefir Dags eru í fimmta sæti þýsku 1. deildarinnar með 36 stig, fjórum stigum á eftir Hamburg sem er í fjórða sætinu. „Við erum svona á pari má segja. Við erum með þessi fjögur stóru lið fyrir ofan okkur en undanfarin ár hefur okkur tekist að vera fyrir ofan eitt þeirra allavega. Nú höfum við sjálfir lent í miklum meiðslavandræðum, sérstaklega þegar leikjaálagið var hvað mest, þannig að það hefur reynst mun erfiðara að geta strítt stóru liðunum. Við þurfum að berjast fyrir 5. sætinu en við komumst í undanúrslit bikarsins sem við vorum ánægðir með,“ segir Dagur Sigurðsson.
Handbolti Mest lesið Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti Féll á lyfjaprófi við að reyna að verða ólétt Sport „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ Íslenski boltinn Tryggði Japan jafntefli með því að skalla boltann af höfði liðsfélaga og inn Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira