Dagur: Ég myndi samt ekki leggjast flatur fyrir þeim Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. mars 2014 09:00 Dagur Sigurðsson. Vísir/Getty „
Ég var í viðræðum við þýska sambandið áður en það réð Martin þannig að það er ekkert skrítið að nafnið mitt hafi komið upp,“ segir Dagur Sigurðsson við Fréttablaðið um þann orðróm að Degi verði á ný boðið starf sem landsliðsþjálfari Þýskalands í handbolta í sumar. Það er vægast sagt heitt undir Martin Heuberger, þjálfara liðsins, sem mistókst að koma því á EM í Danmörku. Þjóðverjar voru frekar óheppnir í drættinum í umspilsleikina fyrir HM en þar mæta þeir Pólverjum sem þykja sigurstranglegri. Komist Þýskaland ekki á HM þykir næsta víst að Heuberger verði rekinn og hefur Dagur verið orðaður við liðið á ný. „Ég myndi ekki slá það frá mér og myndi alveg setjast niður með þeim. Ég myndi samt ekki leggjast flatur fyrir þeim,“ segir Dagur sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Füchse Berlín. Hann er hvergi banginn við þýska starfið þó þjálfarar fárra handboltaliða séu undir meiri pressu. „Þetta virðist ekki vera skemmtilegasta starf í heimi en aftur á móti væri það mikil áskorun. Þýskaland er stór handboltaþjóð og myndi alveg kitla að reyna að hafa einhver áhrif,“ segir Dagur sem áður stýrði austurríska landsliðinu samhliða því að þjálfa liðið Bregenz. Það kemur ekki til greina að þjálfa Þýskaland og Berlínarrefina. „Nei, ég myndi aldrei gera það samhliða því. Ég er búinn að prófa það og geri það ekki aftur,“ segir Dagur Sigurðsson.
Handbolti Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Dagskráin í dag: Stjörnur eiga leik á HM, NFL og enski Sport Fleiri fréttir Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Sjá meira