Jólalag Gillz komið í útvarpsspilun víða um heim Kjartan Atli Kjartansson skrifar 10. desember 2014 14:37 Lagið er gríðarlega vinsælt um allan heim.
Svo virðist sem vinsældir jólalags Gillz eigi sér engin takmörk. Lagið MUSCLEBELLS er nú farið að óma á erlendum útvarpsstöðum auk þess sem nokkrir mikilsmetnir líkamsræktarfrömuðir hafa deilt laginu á sínum Facebook-síðum. Egill Einarsson segist vera hrærður yfir þessum góðu viðtökum. „Ég er bara mjög hrærður yfir þessum frábæru viðtökum. Eiginlega orðlaus. Sænski miðillinn Aftonbladet hefur einnig óskað eftir því að fá að birta hluta úr myndbandinu, en þar á bæ eru menn að búa til sjónvarpsþátt um óhefðbundin jólalög. Þáttastjórnandinn segist hafa orðið var við miklar vinsældir lagsins. Einnig hefur heyrst að lagið sé mikið spilað í partíum í Danmörku. Vinsældirnar eru því greinilega orðnar alþjóðlegar. Hér að neðan má svo sjá myndband frá Lúxemborg, þar sem lagið ómaði á alþjóðlegri útvarpsstöð. Egill segir að svo virðist sem ákveðin vöntun virðist hafa verið á jólalögum af þessu tagi; teknólögum með dúndrandi bassa. Hann fékk strákana í StopWaitGo með sér í lagasmíðarnar og Ice Cold Music Group til þess að gera myndbandið. Séu spilanir á Facebook og Youtube teknar saman kemur í ljós að lagið hefur verið spilað í tæplega þrjár milljónir skipta. „Mér er efst í huga þakklæti og auðmýkt. Gaman líka að lagið færir fólki um allan heim gleði, nú þegar hátíðirnar eru að ganga í garð og dagurinn hvað stystur. Það má með sanni segja að þessi velgengni hafi snert nýjan og áður óþekktan streng í mínu stóra listamannshjarta. Og það ber að þakka," segir Egill einlægur.Sjá einnig: Jólalag Gillz reynist algjör sprengja Líkamsræktarfrömuðurinn Jaco De Bryun hefur birt lagið á sinni Facebook-síðu og merkir það „Muscle Christmas - Best Video Ever!", sem í lauslegri þýðingu lítur svo út: „Vöðvajól - Besta myndband allra tíma.". Myndbandinu hefur verið deilt tæplega ellefu þúsund sinnum af síðu hans og hefur á tíunda þúsund manns smellt á „like-takkann“. Alls hafa rúmlega 680 þúsund manns horft á myndbandið, bara á vefsíðu De Bryun. Myndbandið er einnig vinsælt á Youtube, þar sem um 350 þúsund manns hafa horft á það.
Tengdar fréttir Svíar ekki hrifnir af jólalagi Gillz Talið eitt versta jólalag þessa árs. 10. desember 2014 14:22 Jólalag Gillz reynist algjör sprengja Um þessar mundir hlusta milljónir á nýtt lag Egils Einarssonar og berast tilboð utan úr heimi um afnot á laginu. 8. desember 2014 12:54 Gillz gefur út nýtt jólalag DJ Muscleboy vill æfa vel um jólin svo hann fái heitan kropp. 5. desember 2014 17:26 Mest lesið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Fleiri fréttir Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Sjá meira
Jólalag Gillz reynist algjör sprengja Um þessar mundir hlusta milljónir á nýtt lag Egils Einarssonar og berast tilboð utan úr heimi um afnot á laginu. 8. desember 2014 12:54
Gillz gefur út nýtt jólalag DJ Muscleboy vill æfa vel um jólin svo hann fái heitan kropp. 5. desember 2014 17:26