Jól

Byggði Eiffelturninn úr pipar­kökum og ætlar sér meira

Helena Rós Sturludóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa
Heba segist hafa mjög gaman að því að vinna með höndunum.
Heba segist hafa mjög gaman að því að vinna með höndunum. Vísir/Einar

Piparkökuskreytingar eru löngu orðinn fastur liður hjá mörgum fyrir jólin. Ung kona á Seltjarnarnesi gengur skrefinu lengra í ár og hefur meðal annars bakað stóran og veglegan piparköku Eiffelturn sem prýðir stofu fjölskyldunnar.

Fréttamaður leit við hjá hinni 23 ára gömlu Hebu Guðrúnu Nielsen í Kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á að baka. Ég gerði eitt í fyrra, þannig að ég ákvað að gera það sama í ár. Nema ég ákvað að gera þau aðeins stærri og flottari. Ég ákvað að gera Eiffelturninn og Tower Brigde“ segir Heba.

Heba segist hafa varið mörgum kvöldstundum í verkefnið. „Allan nóvember, svolítið í október og eitthvað í desember. Þannig að mjög mikið af kvöldstundum.“

Hvað finnst fjölskyldunni um þetta áhugamál?

„Þeim finnst þetta geggjað. Þau alla vega hafa ekkert slæmt að segja um það. Ég hef mitt pláss og minn tíma og enginn að trufla mig. Þannig að þeim finnst það bara geggjað.“

Heba, sem er ekki lærður bakari, segist hafa mjög gaman að því að vinna með höndunum. 

„Ég er mjög mikið að prjóna og hekla og baka kökur, og alls konar. Ég hef gaman að þessu öllu.“

Eiffelturninn og Tower-brúin á góðum stað á heimili Hebu. Vísir/Einar

Heba segist sjá fyrir sér að leggja eitthvað af því fyrir sig. „Ég sé mig ekki fyrir mér í einhverju öðru. Einhverju bókatengdu eða einhverju þannig, ég sé það ekki fyrir mér. Frekar eitthvað svona.“

Sjálf segist Heba ekki borða piparkökur. En hvað verður þá um piparkökuhúsin þegar jólin klárast?

„Ég set bara poka yfir og hendi því niður,“ segir Heba og hlær. 

Heba segir það smá sársaukafullt að horfa á verkin fara í ruslið. En þá geri hún bara eitthvað flottara á næsta ári. Og hana dreymir stórt.

„Ég væri til í að geta gert Taj Mahal bygginguna. Kannski geri ég það einn daginn,“ segir Heba. 

Verk Hebu lítur vel út í ljósi jafnt sem myrkri. Vísir/Einar







×