Innlent

Þakplötur fuku á bíl á ferð við Álftamýri

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá þakplötu sem fauk á kyrrstæðan bíl við Álftamýri.
Hér má sjá þakplötu sem fauk á kyrrstæðan bíl við Álftamýri.
Þakplötur fuku á bifreið á ferð í Álftamýri á áttunda tímanum í kvöld. Við stýrið var maður af erlendu bergi brotinn, sem var furðu lostinn við þennan atburð. Sex stórar þakplötur fuku af fjölbýlishúsi við götuna og enduðu, eins og fyrr segir, tvær þeirra á bifreið mannsins.

Maðurinn gaf sig á tal við vegfarendur og velti fyrir sér hvern hann ætti að hafa samband við vegna trygginga.

Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út á staðinn og á meðfylgjandi myndum má sjá þá fjarlæga þakplötur af annarri bifreið, sem var kyrrstæð. Nýbúið er að skipta um þakplötur á húsinu en það gekk ekki betur en svo að þær fuku af í óveðrinu.

Björgunarsveitarmenn vinna nú að því að rýma bílastæði í grenndinni til þess að forða frekara tjóni. Það er of hvasst á þaki hússins til þess að hægt sé að festa plöturnar niður þar og verður það gert þegar fer að lægja.

Veistu meira um málið? Sendu okkur póst á ritstjórn@visir.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×