„Ég held að daður geti verið mjög hollt“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 24. nóvember 2014 12:45
Hjúkrunarfræðingurinn Ragga Eiríks mætti í morgunþátt FM957 í morgun til að tala um daður á vinnustöðum og hvort það væri hollt. Taldi hún þetta tilvalinn tímapunkt til að ræða það þar sem alls kyns veislur eru fyrirhugaðar á vinnustöðum í aðdraganda jóla. „Fólkið sem er búið að vera að gjóa augunum alveg síðan síðustu áramót hefur verið að bíða eftir tækifæri til að drekka í sig svolítið af sjálfstrausti,“ segir Ragga eins og heyra má í meðfylgjandi hljóðbroti. „Kannski er einhvers konar daður búið að ganga heillengi á vinnustaðnum og síðan er beðið eftir þessari afsökun sem hömluleysi áfengisins leyfir,“ bætir hún við. Hún segir það ekki skrýtið að vinnufélagar myndi djúp tengsl þar sem við eyðum meiri tíma í vöku með vinnufélögunum en mökum. „Stundum fer þetta yfir í einhvers konar fantasíur eða daður. Kannski augngotur eða bros,“ segir hún og bætir við að hver og einn þurfi að meta hvort daður á vinnustað sé rangt. „Ég held að daður geti verið mjög hollt. Ég held að það geti bjargað samböndum stundum,“ segir Ragga en hún telur að sú orka sem fæst úr daðri geti verið tekin með heim til að blása lífi í samband sem stendur á brauðfótum.
Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Fleiri fréttir Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Sjá meira