Sport

Svindlaði sér inn á Vetrarólympíuleikana

Mae var hress í Sotsjí þrátt fyrir lélegt gengi enda átti hún ekkert erindi þangað.
Mae var hress í Sotsjí þrátt fyrir lélegt gengi enda átti hún ekkert erindi þangað. vísir/getty
Fiðlusnillingurinn Vanessa Mae hefur verið dæmd í fjögurra ára keppnisbann af alþjóða skíðasambandinu.

Það vakti mikla athygli er hún tryggði sér þátttökurétt á ÓL í Sotsjí aðeins nokkrum dögum áður en glugginn til Sotsjí lokaðist.

Nú hefur komið í ljós að tímum keppenda á móti í Slóveníu var breytt svo Mae kæmist inn á Ólympíuleikana. Allir starfsmenn mótsins hafa verið settir í bann vegna málsins.

Ýmislegt var gert til þess að svindla. Tímum var hagrætt og keppendur sem voru ekkert á svæðinu voru á skrá með tíma.

Í Sotsjí kom í ljós að Mae átti ekkert erindi á leikana. Hún varð síðust í stórsvigskeppninni. Heilum 50 sekúndum á eftir sigurvegaranum.

Mae gaf út sína fyrstu plötu aðeins 13 ára gömul og hefur selt yfir 10 milljón eintök af plötum sínum. Hér að neðan má sjá eitt myndband af henni með fiðluna.


Tengdar fréttir

Fiðlusnillingur keppir í svigi í Sochi

Vanessa-Mae leggur fiðluna til hliðar um stundarsakir á meðan hún keppir í svigi fyrir hönd Tælands á Vetrarólympíuleikunum í Sochi sem hefjast 7. febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×