Rappandi eiginkona slær í gegn á netinu Kjartan Atli Kjartansson skrifar 18. nóvember 2014 10:54 Hér má sjá Ranger rappandi.
Hjón frá Kanada hafa slegið í gegn eftir að maðurinn birti myndband af konu sinni að rappa lag eftir hina goðsagnakenndu rappsveit Salt N‘ Pepa. Myndbandið, sem er fjörutíu sekúndur að lengd, hefur farið víða á netinu og hefur verið horft á það tæplega sex milljón sinnum á Youtube.Hér má sjá myndbandið: Margir erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um myndbandið. Á vef Washington Post er umfjöllun um það og þeirri spurningu velt upp af hverju það sló svona rækilega í gegn á netinu. Rapp eiginkonunnar, sem heitir Chelsea Ranger, þykir ekki betra en ýmislegt annað og lagið ekki flókið. En eiginmaðurinn, Paolo Salmao, heldur að myndbandið hafi slegið í gegn því það sýnir hversu góðir vinir þau hjónin séu. „Þarna sér fólk par sem nýtur þess að vera með hvort öðru. Ég held að það sé aðalatriðið,“ segir hann í samtali við blaðamann Washington Post. Salmao titlaði myndbandið „Sætasti gangster sem ég þekki“. Vinsældir myndbandsins komu honum virkilega á óvart. Hann var nýbúinn að birta tvær myndir af ketti þeirra hjóna á vefnum Reddit sem fengu nokkuð sterk viðbrögð, sexíu athugasemdir. Hann ákvað því að prófa að birta þetta myndband og óraði ekki fyrir því hvað myndi gerast. „Maður varð svolítið hræddur. Maður veit í raun ekkert hvað mun gerast eða hvert myndbandið fer,“ segir Salmao. Hann segir að rapparinn Ranger hafi ekkert breyst við þessa frægð: „Hún er rosalega jarðbundin,“ útskýrir eiginmaðurinn. Parið veltir nú fyrir sér að birta fleiri myndbönd af svona hversdagslegum en jákvæðum stundum. Margir sem hafa séð myndbandið vilja sjá meira af þeim og liggja hjónin nú undir feldi. Hér að neðan má svo sjá rappdrottningarnar Salt N' Pepa rappa lagið sem Ranger rappaði í bílnum.
Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Jólaboð Evu: Kalkúnabringur með öllu tilheyrandi Matur Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Laufey á landinu Lífið Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Lífið Fleiri fréttir Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Sjá meira