Skipta yfir í ensku svo þær geti hjálpað feita og ljóta fólkinu í útlöndum Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 18. nóvember 2014 11:23 Anna og Bylgja sem Tinna og Tóta. „
Tinna og Tóta urðu til árið 2012. Við bjuggum fyrst til tvo þætti þar sem við vorum aðallega að gera grín að módel fitness en þetta hefur þróast út í að vera meira um ýkjurnar og geðveikina sem fylgir heilsuæðinu og útlitsdýrkun,“ segir leikkonan Anna Hafþorsdóttir. Hún og Bylgja Babýlons hafa hafið söfnun á hópfjármögnunarsíðunni Karolina Fund og freista þess að safna fyrir gerð nýrra þátta um stöllurnar Tinnu og Tótu, sem sýndir voru á Bravó. „Við gerðum átta þætti með Stórveldinu sem sýndir voru á Bravó. Það var ótrúlega skemmtilegt og þegar Bravó ævintýrið kláraðist gerðum við „pilot“-þátt með Stórveldinu og ætluðum að reyna að koma Tinnu og Tótu í sjónvarpið. Það gekk ekki upp en við Bylgja erum ekki tilbúnar að kveðja dætur okkar Tinnu og Tótu og ætlum því að halda áfram að gera þætti og setja á YouTube. Til þess að við endum ekki á götunni, að borða upp úr ruslatunnum hófum við söfnun á Karolina Fund,“ segir Anna. Þær Bylgja ætla að reyna að safna tvö hundruð þúsund krónum á síðunni.Tinna og Tóta ætla í útrás.„Ef sú upphæð næst ekki næsta mánuðinn munum við ekki fá neitt. Þessi peningur mun fara í framleiðsluna á þáttunum en það er ekkert grín að vera fabjúlöss í dag, eins og Tinna og Tóta eru. Það þarf að fara í brúnkusprey, fá gervineglur, augnhár, föt og ég veit ekki hvað og hvað. Svo þurfum við auðvitað græjur til að taka upp mynd og hljóð.“ Þeir sem styðja stöllurnar fá ýmislegt að launum, til dæmis áritaða mynd af Tinnu og Tótu og persónulegt bréf frá þeim eða eintaklingsmiðaða ráðgjöf í vídjóbloggi. Tinna og Tóta láta sér heimamarkaðinn ekki nægja og stefna á frekari landvinninga með nýju seríunni. „Í næstu þáttaröð munu áhorfendur fá ýmis góð ráð, bæði til að halda sér í formi og til þess að vera fallegir. Helsta breytingin er sú að þær Tinna og Tóta ætla að skipta yfir í ensku svo þær geti líka hjálpað feita og ljóta fólkinu í útlöndum. Já, þær eru sem sagt að fara í heljarinnar útrás og það er ekki langt í heimsfrægð hjá þeim,“ segir Anna.
Mest lesið Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Menning Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Sjá meira