Innlent

Hætta á færibandavinnu í málum hælisleitenda

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Lögmaður Útlendingastofnunar segir málsmeðferð Omos hafa verið vandaða - hann hefði fengið tíma og tækifæri til að koma öllum sínum sjónarmiðum á framfæri.
Lögmaður Útlendingastofnunar segir málsmeðferð Omos hafa verið vandaða - hann hefði fengið tíma og tækifæri til að koma öllum sínum sjónarmiðum á framfæri. vísir/pjetur
Lögmaður Tony Omos telur að minnisblaði um Omos hafi gagngert verið lekið úr innanríkisráðuneytinu til þess eins að gera hann tortryggilegan svo hægt væri að vísa honum úr landi. Lekinn hafi verið réttlæting ákvörðunar ráðuneytisins og fer fram á að úrskurður innanríkisráðuneytisins verði ógildur.

Þetta kom fram í munnlegum málflutningi lögmannsins en aðalmeðferð í máli Tony Omos gegn Útlendingastofnun fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.  Omos biðlaði til stjórnvalda að veita sér hæli hér á landi, það sé honum nauðsynlegt svo hann fái tækifæri til að ala upp son sinn og vera með unnustu sinni. Sagði hann það ósk sína að koma aftur til landsins til að sjá barni sínu farborða.

Álag engin afsökun

Stefán Karl Kristjánsson, lögmaður Omos, sagði óviðunandi að mál hælisleitenda dragist á langinn og sagði að álag á starfsfólk sem fjalla eigi um málin sé ekki afsökun. Þess þó heldur skapist hætta á að niðurstöður allra mála verði eins og í færibandavinnu innan embætta. Hann sagði málsmeðferðina óvandaða og óviðundandi og vísaði í tvo dóma sem féllu í málum hælisleitenda á þessu ári. Sagði hann þá allt eins geta átt við um Omos því orðalagið væri alls staðar eins. Það væri til marks um að yfirvöld sinntu ekki rannsóknarskyldu sinni.

Tony Omos, flóttamaður frá Nígeríu.
Fékk að koma sínum sjónarmiðum á framfæri

Fanney Rós Þorsteinsdóttir, lögmaður Útlendingastofnunar, sagði málsmeðferðina vandaða. Omos hefði fengið þann tíma sem hann þurfti til að afla mikilvægra gagna og að hann hefði haft sinn andmælarétt. Ómögulegt hefði verið fyrir embættið að leggjast í rannsóknarvinnu á gögnum sem ekki hefðu komið fram.  Hann hefði notið aðstoðar túlks, öll hans réttindi hefðu verið tryggð og hann fengið að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

Stefán gagnrýndi harðlega langan málsmeðferðartíma – tvö ár hefðu liðið frá því að Tony kom hingað þar til úrskurðað var í máli hans. Nú væri ár liðið frá því að kæra var lögð fram en þrátt  fyrir það væri málið ekki lengra komið. Omos hefði verið hafður að ginningarfífli og orðinn hornreka í íslensku samfélagi í ljósi lekans.  Þá sagði hann að innanríkisráðuneytið hefði ekki gætt hlutlægnisskyldu sinni við málsmeðferð Omos. Vísaði hann til minnisblaðsins máli sínu til stuðnings.

Fanney Rós andmælti þessu og sagði þá málsástæðu hafa komið of seint fram og ekki studda neinum gögnum. Hún sagði mikla vinnu hafa farið fram við að meta aðstæður í ríkjum sem hælisleitendur væru sendir aftur til og að aðstæður í Sviss væru góðar.

Aðalmeðferð málsins lauk með munnlegum málflutningi lögmannanna í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.


Tengdar fréttir

Gísli Freyr neitar sök

Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra, neitaði sök í lekamálinu svokallaða við þingfestingu málsins sem fram fór í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Krefja Gísla Frey um sjö milljónir króna

Gísli Freyr Valdórsson, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, er krafinn um sjö milljónir króna í miskabætur vegna meints leka úr innanríkisráðuneytinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×