Formúla 1

FIA breytir tímatökunni í Texas

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Sebastian Vettel tekur við verðlaunum frá Jean Todt, forseta FIA.
Sebastian Vettel tekur við verðlaunum frá Jean Todt, forseta FIA. Vísir/Getty
FIA (alþjóða akstursíþróttasambandið) hefur ákveðið að tímatakan í Texas á laugardag verði með breyttu sniði. Breytingin er til að koma til móts við fjarveru Caterham og Marussia.

Það sem einungis níu lið mættu til bandaríkjanna vantar fjóra bíla. Einungis fjórir hægustu munu detta út í fyrstu lotu, fjórir hægustu í annarri. Tíu hröðustu bílarnir berjast svo í þriðju lotu um ráspól.

Dómarar keppninnar sendu erindi til Jean Todt, forseta FIA varðandi refsingu Caterham og Marussia fyrir að mæta ekki til keppni. FIA ákvað taka tillit til fjárhagsaðstæðna liðanna og sleppa því að beita refsingu í þetta skipti.

Sebastian Vettel sagði í gær að hann myndi af öllum líkindum sleppa tímatökunni til að spara nýja vél sem sett verður í bíl hans yfir helgina. Hugsanlega verður þó gamla vélin látin duga þangað til næst en það er ólíklegt. Afleiðingarnar verða þá að 17 bílar taki þátt í tímatökunni. 


Tengdar fréttir

Caterham má missa af tveimur keppnum

Bernie Ecclestone er tilbúinn að leyfa Caterham liðinu að sleppa tveimur næstu keppnum til að einbeita sér að því að finna kaupendur.

Vettel sleppir væntanlega tímatökunni í Texas

Sebastian Vettel, fjórfaldur og ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1 segir að líklega muni hann sleppa tímatökunni. Tilgangurinn er að spara nýja vél sem sett verður í bílinn.

Haas: Fyrstu fimm árin snúast um að komast af

Gene Haas segir að fyrstu fimm árin hjá nýju formúlu 1 liði hans muni snúast um að komast af. Hann ætlar að læra af mistökum annarra nýrra liða í gegnum tíðina.

Stóru liðin ætla að skaffa litlu liðunum bíla

Bernie Ecclestone segir að samningur sem gerður hefur verið við stærri liðin í Formúlu 1 gæti leitt til þess að þau skaffi minni liðunum bíla. Þetta gæti komið til ef allt stefnir í mikla fækkun keppnisliða.

Bræður vilja bjarga Marussia

Bresk-indverskir bræður, Baljinder Sohi og Sonny Kaushal eru nú í samningaviðræðum við forsvarsmenn Marussia. Þeim virðist vera full alvara í að reyna að bjarga liðinu.

Marussia missir af næstu keppni

Bernie Ecclestone, einráður formúlu 1 hefur staðfest að Marussia muni, ásamt Caterham liðinu missa af bandaríska kappakstrinum næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×