Fræða börnin áður en þau byrja að skoða klám Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 6. október 2014 14:22 Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Brynhildur Björnsdóttir gerðu myndina Stattu með þér! í sameiningu. vísir/valli „
Íslensk börn eru að meðaltali 11 ára gömul þegar þau sjá klám í fyrsta skipti. Það segir okkur að 10-12 ára krakkar eru alls ekki of ungir til að fá fræðslu því þau þurfa að þróa með sér gagnrýna hugsun,“ segir Brynhildur Björnsdóttir, leikstjóri myndarinnar Stattu með þér! sem frumsýnd verður í öllum grunnskólum landsins á fimmtudaginn. Brynhildur og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir unnu myndina saman og er hún sjálfstætt framhald „Fáðu já!“ sem þær stöllur gerðu ásamt Páli Óskari. Sú mynd var ætluð börnum í 10. bekk en myndirnar eiga það sameiginlegt að vera forvarnarmyndir gegn kynferðisofbeldi. „Við fengum þau skilaboð frá krökkunum sem sáu Fáðu já! að þau hefðu viljað fá þessa fræðslu fyrr. Börn á aldrinum tíu til tólf ára eru markhópur fyrir alls kyns kynferðisleg skilaboð löngu áður en þau komast á unglingsaldur,“ segir Brynhildur. Í myndinni er ekki fjallað á beinan hátt um kynlíf og klám heldur er verið að reyna að undirbúa börnin fyrir áreitið sem þau munu verða fyrir frá umhverfinu. „Við viljum að þau noti gagnrýna hugsun þegar þau þurfa að taka ákvörðun um hvort þau til dæmis sendi nektarmynd af sér vegna þrýstings frá félögum. Einnig förum við yfir hluti eins og fjölmiðlalæsi, líkamsvitund, að vera stoltur af líkama sínum og tökum þar photoshop sérstaklega fyrir,“ segir Brynhildur og vonar að árangurinn verði að börn standi með eigin skoðunum og viðhorfum í stað þess að taka þátt í einhverju sem þeim þykir óþægilegt, þótt auðvitað beri gerendur alltaf ábyrgð á ofbeldi en ekki þeir sem verða fyrir því. Fyrst og fremst þurfi börn þó að bera virðingu fyrir sjálfum sér.
Mest lesið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Lífið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Lífið Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Lífið Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Leikjavísir „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Sjá meira