Kennari Robins Williams og Súpermans látinn Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 7. október 2014 15:00 Marian Seldes. vísir/getty
Broadway-stjarnan og kennarinn Marian Seldes lést á heimili sínu á mánudaginn, 86 ára að aldri. Að sögn bróður hennar, Timothy Seldes, lést hún úr langvinnum veikindum. „Það er með mikilli sorg í hjarta að ég deili þeim fréttum að mín kæra systir, Marian Seldes, er látin,“ segir Timothy í tilkynningu til fjölmiðla. Marian steig fyrst á svið á Broadway árið 1942 í Medeu ásamt Judith Anderson. Marian var tilnefnd til Tony-verðlauna fimm sinnum á ferlinum og hlaut þau tvisvar, fyrst árið 1967 fyrir hlutverk sitt í A Delicate Balance og seinna árið 2010 en þá hlaut hún verðlaun fyrir ævistarf sitt. Leikkonan skráði sig í Heimsmetabók Guinness fyrir að leika í hverri einustu sýningu af Deathtrap á árunum 1978 til 1982, alls 1809 sýningum. Leikkonan Catherine Russell bætti þetta met seinna með rúmlega ellefu þúsund sýningum af Perfect Crime. Á árunum 1969 til 1992 starfaði Marian sem kennari við hinn virta Juilliard-skóla og kenndi nemendum á borð við Kevin Kline, Robin Williams, Laura Linney og Christopher Reeve heitnum, sem var hvað þekktastur fyrir að leika Súperman, leiklist. Þá lék hún einnig í fjölmörgum kvikmyndum, þar á meðal Mona Lisa Smile, Home Alone 3 og Celebrity. Þá lék hún móður Mr. Big í sjónvarpsseríunni Sex and the City og frænku Candice Bergen í Murphy Brown. Marian giftist tvisvar, fyrst skáldinu Julian Claman, en þau skildu árið 1961, og seinna leikskáldinu Garson Kanin sem lést árið 1999. Hún skilur eftir sig dóttur og þrjú barnabörn.
Mest lesið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Lífið Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Lífið Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Leikjavísir Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Sjá meira