Hársbreidd frá draumi sínum um Íslandsheimsókn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. september 2014 11:00 Mynd af Facebook-síðu Pippu.
Sigur Rós gaf 600 þúsund krónur í söfnun fyrir hina sjö ára gömlu Pippu frá Bandaríkjunum. Pippa, sem glímir við afar sjaldgæfa tegund flogaveiki og er bundin við hjólastól, á sér þann draum heitastan að sækja Ísland heim. Sigur Rós er hennar uppáhaldshljómsveit.DV greindi fyrst íslenskra miðla frá söfnuninni fyrir Pippu sem fram fer á vefsíðunni Go Fund Me. Markmiðið var að safna 25 þúsundum bandarískra dala eða jafnvirði um þriggja milljóna íslenskra króna. Þegar þetta er skrifað vantar aðeins um 1600 dollara eða jafnvirði um 200 þúsund króna upp á að markmiðið náist. Pippa og fjölskylda sáu Sigur Rós á tónleikum í Kansasborg vorið 2013. Fjölskyldan hafði áhyggjur af því að hávaðinn og blikkandi ljós gætu orðið til þess að Pippa fengi flogakast. Hins vegar reyndist aukinn hávaði og ljósasýning einfaldlega stækka brosið á andliti Pippu.Strákarnir í Sigur Rós.Vísir/Getty„Hún hló og baðaði út höndunum líkt og hún væri stjórnandi hljómsveitarinnar,“ segir í texta á söfnunarsíðunni. Geisladiskur með Jónsa, söngvara Sigur Rósar, er spilaður á hverjum degi þegar Pippa heldur í skólann. Fjölskylda Pippu segist þó ekki hafa áttað sig fullkomlega á því hversu mikla unun stúlkan hafði af tónlist fyrr en hún fór í skurðaðgerð á mjöðm í mars síðastliðnum. Hún fann fyrir miklum sársauka og gat ekki gert annað en legið fyrir í marga daga. „Einn daginn skellti móðir hennar DVD-disknum Heima með Sigur Rós í tækið þar sem hljómsveitin spilar um land allt ásamt því að segja sögur. Eins ótrúlegt og það er var þetta í fyrsta skipti sem Pippa felldi ekki tár í tvær klukkustundir,“ segir í textanum á söfnunarsíðunni. Fullyrt er að diskurinn hafi hjálpað henni afar mikið í endurhæfingunni. Móðir Pippu greinir frá því í athugasemdakerfi DV að Hótel Kvosin hafi boðist til að hýsa Pippu og fjölskyldu á meðan þau dvelja hér á landi. Ekki liggur fyrir hvenær þau koma en þau ætla að dvelja hér eins lengi og mögulegt er. „Vissirðu að hún hefur aldrei í sjö og hálfs árs löngu lífi sínu spurt að því hvers vegna fætur hennar virka ekki eins og hjá öðrum krökkum? Hún einfaldlega sættir sig við það að fæturnir virki ekki og elskar að hjólastóllinn geri henni kleyft að komast leiðar sinnar. Hún verður líka mjög spennt þegar hún sér aðra í hjólastól.“
Mest lesið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Tíska og hönnun „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Lífið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Lífið Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Lífið Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Lífið Fleiri fréttir Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sjá meira