Erlent

Gagnrýnt fyrir ósmekklega auglýsingaherferð

Atli Ísleifsson skrifar
Árið hefur verið malasíska flugfélaginu Malaysia Airlines erfitt.
Árið hefur verið malasíska flugfélaginu Malaysia Airlines erfitt. Vísir/AFP
Malasíska flugfélagið Malaysia Airlines hefur verið harðlega gagnrýnt og orðið fyrir spotti á samfélagsmiðlum vegna nýrrar auglýsingaherferðar sinnar í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi.

Í herferðinni er fólk hvatt til að búa til lista yfir alla þá hluti sem það vill gera áður en það fer yfir móðuna miklu.

Auglýsingin þykir í meira lagi óheppileg þar sem samtals 537 hafa látið lífið í tveimur atvikum sem tengjast flugfélaginu á þessu ári – annars vegar þegar MH370 hvarf af ratsjám í Indlandshafi í mars og hins vegar þegar MH17 var skotin niður í austurhluta Úkraínu í júlí.

Flugfélagið vinnur nú hörðum höndum bæta ímynd sína en farþegum hefur fækkað gríðarlega síðustu mánuði. Í frétt Sydney Morning Herald segir að herferðin hafi gengið út á að fólk sendi inn lista yfir þá hluti sem það vill gera áður en það deyr og gæti þá unnið flugferð með flugfélaginu eða þá spjaldtölvu.

Í kjölfar gagnrýninnar var ákveðið að breyta nafni herferðarinnar þar sem vísunin í dauðann var fjarlægð og hafa talsmenn flugfélagsins sagt að ekki hafi verið ætlunin að vekja upp slæmar minningar hjá þeim sem misstu vini og vandamenn sem voru í vélunum tveimur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×