Vopnahlé í Úkraínu heldur Samúel Karl Ólason skrifar 6. september 2014 10:50 Aðskilnaðarsinnar segja að tveimur sprengjum hafi verið varpað á Donetsk í nótt í trássi við vopnahléið. Vísir/AP
Vopnahléið í Austur-Úkraínu virðist halda í dag. Þrátt fyrir það hefur einn leiðtogi aðskilnaðarsinna haldið því fram að stjórnarherinn hafi brotið gegn samkomulaginu, sem sýnir hve brothætt vopnahléið er.AP fréttaveitan hefur eftir háttsettum foringja í her Úkraínu að þrátt fyrir að skothríð hafi ekki hætt fyrr en um 45 mínútum eftir að vopnahléið tók gildi, hafi ekki komið til átaka í dag. „Fram til þessa hefur vopnahléið ekki verið brotið, hvorki af okkar mönnum, auðvitað, né af hryðjuverkamönnunum,“ segir Stepan Poltrak. Alexander Zakharchenko, leiðtogi aðskilnaðarsinna í Donetsk, segir nóttina hafa verið rólega í borginni. Hann segir þó að tveimur sprengjum hafi verið varpað á borgina í nótt í trássi við vopnahléið. Úkraína, Rússland og aðskilnaðarsinnarnir skrifuðu í gær undir vopnahlé í Minsk í Hvíta-Rússlandi, til að binda enda á átökin sem hafa varið í fimm mánuði og dregið um 2.600 almenna borgara til dauða. Vestrænir þjóðarleiðtogar hafa þó gefið í skyn efasemdir um vilja Rússlands til að virða samkomulagið. Barack Obama er þeirra á meðal, en hann sagði Rússland þyrfti að hætta að brjóta gegn fullveldi Úkraínu.Munu bregðast við þvingunum Hertar viðskiptaþvinganir Evrópusambandsins gegn Rússlandi taka gildi á mánudaginn. En ESB segir að þær gætu verið felldar niður, dragi Rússar hermenn sína til baka frá Úkraínu og virði vopnahléið að fullu. Utanríkisráðuneyti Rússlands sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem segir að taki þvinganirnar gildi muni Rússland bregðast við. BBC segir Rússa saka ESB um að lýsa yfir beinum stuðningi við yfirvöld í Kænugarði sem hafi ollið stríðinu. „Í stað þess að leita leiða til að skaða efnahagi Rússlands og Evrópu, ætti ESB frekar að styðja enduruppbyggingu efnahags Austur-Úkraínu,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Fleiri fréttir Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Sjá meira