Setuverkfall á DV: Blaðamenn sitja aðgerðarlausir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. september 2014 15:02 Frá fundi ritstjórnar með nýjum ritstjóra og stjórnarformanni DV í morgun. Vísir/GVA
Samkvæmt heimildum Vísis ríkir eiginlegt setuverkfall á ritstjórn DV í Tryggvagötu. Blaðamenn sitja aðgerðarlausir við tölvuna og umbrotsfólk er farið heim.Líkt og fjallað var um fyrr í dag kemur DV ekki út á morgun. Útgáfu blaðsins var frestað til þriðjudags. Hallgrímur Thorsteinsson, nýr ritstjóri miðilsins, sagði hins vegar að blaðamenn væru farnir að leggja drög að blaðinu en það stangast á við heimildir Vísis af ritstjórn blaðsins. Blaðamenn eru afar ósáttir við að fá ekki skýr svör frá Þorsteini Guðnasyni stjórnarformanni við spurningum sem bornar voru fram á fundi í morgun. Sem kunnugt er var Reynir Traustason, fyrrverandi ritstjóri blaðsins, leystur frá starfskyldum sínum um helgina. Honum hefur þó ekki verið sagt upp störfum. Þorsteinn ýjaði að því á fundi með starfsmönnum í morgun að ástæðan væri sú að hann og aðrir stjórnarmenn ættu eftir að kynna sér ráðningarsamninginn við Reyni. Sömuleiðis eru blaðamenn reiðir yfir yfirlýsingu stjórnarinnar um að til standi að láta fara fram úttekt á félaginu. Þar á meðal annars að skoða faglega þætti við störf ritstjórnar og túlka blaðamenn þá aðgerð sem gagnrýni á sín störf. Þorsteinn yfirgaf fundinn í morgun klukkan 11 og taldi blaðamaður DV sem Vísir ræddi við í hádeginu að fundinum yrði framhaldið eftir hádegi. Það virðist hins vegar ekki hafa verið skilningur Hallgríms og Þorsteins. Á meðan virðist enginn skrifa fréttir á ritstjórn DV en vefsíðan DV.is hefur ekki enn verið uppfærð í dag þegar þessi frétt er skrifuð.Uppfært klukkan 15:13: Samkvæmt heimildum Vísis af ritstjórninni bíða blaðamenn þar eftir afsökunarbeiðni frá stjórninni. Enginn sé þar í vinnugír enda telji þeir gróflega vegið að starfsheiðri sínum. Fólk sé verulega ósátt. Hallgrímur Thorsteinsson, nýr ritstjóri DV, segir hins vegar í samtali við fréttastofu að dagurinn í dag sé tiltölulega eðlilegur dagur á ritstjórn. Fólk sé að störfum en ástæða þess að vefsíða DV.is hafi ekki verið uppfærð í dag, þegar klukkan er farin að ganga fjögur, sé sú að starfsmann hafi vantað á vakt. Sú staðreynd að vefsíðan hafi ekki verið uppfærð í dag telur hann ekki tengjast fundinum með starfsmönnum í morgun. Það séu ótengd mál.Uppfært klukkan 16:00 Starfsfólk DV er ósátt við fullyrðingar Þorsteins Guðnasonar í viðtali við RÚV. Þar sagðist Þorsteinn ætla að taka afstöðu til kröfu starfsmanna um svör síðar í dag. Hann skilji hins vegar ekki hvers vegna hann eigi að biðja starfsfólk afsökunar. Starfsmenn geti ekki beitt sig kúgunum. Þeirra starf sé að skrifa fréttir og geri þeir það ekki séu þeir að bregðast starfskyldum sínum. Einn blaðamaður DV segir svívirðilegt af Þorsteini segja starfsfólk beita sig kúgunum. Hann fatti greinilega ekki hvers vegna blaðamenn séu ósáttir. Álykti hann sem svo að fólk sé að bregðast starfskyldum sínum verði hann að segja fólki upp. Þá sitji hann uppi án mannauðs og þar með ekkert dagblað.
Tengdar fréttir Mikill hasar í herbúðum DV Blaðamenn ekki sáttir við gagnrýni á störf Reynis Traustasonar 8. september 2014 10:30 DV kemur ekki út á morgun "Deilurnar í hluthafahópnum hafa verið erfiðar og margir eru sárir vegna yfirlýsinga og framgöngu sumra stjórnarmanna,“ segir Hallgrímur Thorsteinsson, nýr ritstjóri blaðsins 8. september 2014 14:04 Hallgrímur fór yfir málin með ritstjórninni Nýr ritstjóri DV, Hallgrímur Thorsteinsson, fundaði með ritstjórn sinni í húsakynnum DV í Tryggvagötu í morgun. 8. september 2014 09:45 Sagðist ekki hafa séð ráðningarsamning Reynis "Okkur finnst vegið að trúverðugleika allra sem starfa hér,“ segir blaðamaður DV. 8. september 2014 12:18 Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt Sjá meira
Mikill hasar í herbúðum DV Blaðamenn ekki sáttir við gagnrýni á störf Reynis Traustasonar 8. september 2014 10:30
DV kemur ekki út á morgun "Deilurnar í hluthafahópnum hafa verið erfiðar og margir eru sárir vegna yfirlýsinga og framgöngu sumra stjórnarmanna,“ segir Hallgrímur Thorsteinsson, nýr ritstjóri blaðsins 8. september 2014 14:04
Hallgrímur fór yfir málin með ritstjórninni Nýr ritstjóri DV, Hallgrímur Thorsteinsson, fundaði með ritstjórn sinni í húsakynnum DV í Tryggvagötu í morgun. 8. september 2014 09:45
Sagðist ekki hafa séð ráðningarsamning Reynis "Okkur finnst vegið að trúverðugleika allra sem starfa hér,“ segir blaðamaður DV. 8. september 2014 12:18