Innlent

Sjö milljarða halli hjá tólf ríkisstofnunum

Linda Blöndal skrifar
Upplýsingarnar er að finna í öðru ársfjórðungsyfirliti Fjársýslu ríkisins.  Fjárlaganefnd mun krefja forstöðumenn stofnananna skýringa en vera má að hjá einhverjum sé hallinn af eðlilegum og skiljanlegum ástæðum.  

Tólf stofnanir með meira en hundrað milljónir í halla 

Samkvæmt hálfsársuppgjöri ríkissjóðs á þessu ári tróna Sjúkratryggingar efst á listanum ásamt Landsspítala sem er í sautjánhundruð milljóna króna halla og um 570 milljónir það sem af er þessu ári. Með sama áframhaldi yrði halli Sjúkratrygginga 3,4 milljarðar í árslok. Vegagerðin er  í litlu  minni halla eða um sextán hundruð og sextíu milljónum. Af fleiri dæmum má nefna, Framkvæmdasjóður ferðamannastaða sem heyrir undir Ferðamannastofu er kominn 508 milljónir frammúr fjárlögum og Landbúnaðarháskólinn tvö hundruð milljónir en sú skuld er frá fyrra ári. 

Veðurstofan rúmar 120 framyfir 

Málskostnaður í opinberum málum er í 186 milljóna halla og Veðurstofan upp á 123 milljónir, rétt á eftir er embætti sérstaks saksóknara og Rannsóknarnefndir Alþingis sem og Héraðsdómstólar fóru á fyrsta hálfa árinum meira en hundrað milljónum frammúr fjárheimildum. Það sama á við um Landsbókasafn- Háskólabókasafn og Lögreglustjórann á Höfuðborgarsvæðinu sem ber á sér gamlan halla frá fyrra ári.  

Halli upp á tæplega 7 milljarða 

Alls er þetta halli upp á sex komma sjö milljarða gagnvart ríkissjóði, en vert er að geta þess að í lok árs má vera að sértekjur hafi breytt einhverju.  

Níu mánaða uppgjör um ríkisfjármál er væntanlegt í september og því mun myndin skýrast betur um hver skuldahallinn er á hverjum stað fyrir sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×