Veiðibann í laxleysi vart talið fært Svavar Hávarðsson skrifar 14. ágúst 2014 07:00 FOSSINN SKUGGI í Langá Um fossinn höfðu gengið um 800 laxar fyrir viku. Veiðin er um 250 laxar. Fréttablaðið/GVA „
Fiskistofa hefur heimild til að grípa inn í og stöðva veiðar. En það er mjög íþyngjandi aðgerð og sú leið sem hefur verið farin er að vinna með veiðifélögunum á hverjum stað,“ segir Guðni Magnús Eiríksson, sviðsstjóri lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu, aðspurður hvort hugsanlegt sé að stofnunin bregðist við lítilli laxveiði í einstökum ám með fyrirskipa veiðibann. Undanfarnar vikur hefur orðið ljóst að göngur í allmargar laxveiðiár hafa brugðist. Helst er þetta áþreifanlegt í ám á Suðvestur og Vesturlandi. Fáliðaður smálax og rýr sýnir að sjávarvist laxins í fyrrasumar og vetur hefur verið honum mjög harðdræg á einhverjum ætistöðvum. Meginhlutverk lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu er að stuðla að sjálfbærri nýtingu laxfiska í ám og vötnum og vernda búsvæði þeirra í samvinnu viðeigendur veiðiréttar og veiðifélög, en þessu úrræði Fiskistofu hefur ekki verið beitt eftir því sem næst verður komist og byggir á 24. grein laga nr. 61/2006 um lax og silungsveiði. Þar er að finna heimild Fiskistofu til að friða lax og silung á ákveðnu svæði að fenginni umsögn Veiðimálastofnunnar. „Ég hef fylgst með þessu; áhyggjum manna af stöðu mála í fleiri ám. En það er erfitt í framkvæmd að grípa inni í með friðun. En ef útlit væri fyrir að menn væru að valda skaða á fiskistofnunum þá kæmi það til greina,“ segir Guðni Magnús en segir að Fiskistofu hafi ekki borist neitt formlegt erindi vegna fiskleysis.Langá Vötn og veiði, fréttavefur um stangveiði, gerði laxleysið að umtalsefni um helgina. Þar var vikið sérstaklega að veiði í Langá, sem hefur kannski fengið þyngst á kjaftinn þegar litið er yfir sviðið. Þar er áhyggjum lýst af því þegar maðkaveiði byrjar að nýju eftir nokkurra vikna fluguveiðitíma. Spurt er einfaldlega hvort stofn Langár þoli álagið sem því fylgir, en laxamokið í Langá þegar maðkur er aftur notað sem agn er alþekkt. Hver stöng má drepa 10 laxa á dag, en veitt er á 12 dagstangir. Á þriðjudagskvöld höfðu veiðst 249 laxar en tæplega 1.700 á sama tíma í fyrra. Hörmungarárið 2012 voru 620 laxar komnir á land. Í framhaldi af greininni í Vötn og veiði hefur risið lífleg umræða milli áhugamanna um stangveiði á samfélagsmiðlum þar sem er spurt hvort ekki eigi að grípa inn í veiðina í Langá, og hvar ábyrgðin liggur þegar svo illa árar - hjá Fiskistofu, Veiðifélagi Langár eða leigutakanum sem í tilfelli Langár er Stangaveiðifélag Reykjavíkur.Áhyggjur Einar Ole Pedersen, formaður Veiðifélags Langár, hefur þungar áhyggjur af stöðunni í Langá, en ekki síður af laxleysinu víða um land og framtíð greinarinnar í heild. Hann furðar sig á því að til þess bærar stofnanir hafi ekki þegar gert gangskör að því að hefja rannsóknir. Menn viti allt um árnar sjálfar en lítið sem ekkert um það sem er að gerast í hafinu, sem augljóslega sé ástæðan fyrir fiskleysinu. Hann bendir á að þeir ferðamenn sem hingað koma til lands sé fjárhagslega sterkir og góðir viðskiptavinir; nákvæmlega sá hópur sem forsvarsmenn ferðaþjónustunnar hafa kallað eftir að verði fjölgað hérlendis. Það séu ekki bara hagur þeirra sem standa beint að því að selja vöruna sem stangveiði er, heldur sé þetta hagsmunamál þjóðarinnar enda séu fjölmargir aðrir sem njóta góðs af komu þessara veiðimanna hingað til lands. Hvað Langá varðar sérstaklega segir Einar að veiðin í Langá í sumar sé öllum mikið áhyggjuefni. Spurður um maðkahollið fræga sem mætir til veiða 20. ágúst segir hann að maðkaveiðin hafi hafist í Langá á þessum tíma í fjöldamörg ár. Veiðifyrirkomulagið í Langá hafi margoft verið rætt, bæði innan félagsins en ekki síður við forsvarsmenn SVFR sem leigutaka árinnar. Engin niðurstaða hafi fengist, en eins og þekkt sé hafi menn misjafnar skoðanir um veiðifyrirkomulag í íslenskum ám - hvort veiða á yfir höfuð á maðk eða leyfa einungis fluguveiði. Veiðiálagið ekki of mikið Einar segir að fiskifræðingar hafi gert fjölmargar rannsóknir í Langá og niðurstöðurnar jafnan samhljóða. „Þeir hafa yfirleitt sagt að veiðiálagið í Langá sé í samræmi við stöðu stofnsins í ánni, og reyndar sagt að veiðiálagið mætti vera meira en hefur verið síðustu árin. Veiðimönnum hefur ekki þótt dagkvótinn nógu rúmur, eða þessir tíu laxar á stöng á dag,“ segir Einar og bætir við að þrátt fyrir að ekki veiðist nema sárafáir laxar á hverjum degi þessa dagana þá sé töluvert af laxi í ánni engu að síður samkvæmt fiskiteljurunum. „Fyrir um viku voru 800 laxar gengnir í gegnum teljarann í Skugga. En það er miklu minna af fiski en verið hefur og hann er verr haldinn en hefur verið. Árið 2012 var hátíð miðað við þetta ástand. Þetta er fáheyrður fjöldi veiddra laxa eins og víða annars staðar. En það sem gerir Langá svona tölulega verri en margar aðrar er að í ánni er lítið af stórlaxi, sem hefur verið að halda uppi tölunum hér um slóðir.“ Einar segir að innan veiðifélagsins hafi staðan ekki sérstaklega verið rædd vegna ástandsins í ánni þetta sumarið. „Menn eru bundnir af leigusamningum, og þetta snýst um samvinnu leigusala og leigutaka. Menn geta alltaf þrengt veiðireglur, en það er frekar leigutakans að ákveða slíkt.“ Spurður hvort ábyrgðin liggi ekki alfarið hjá eigandanum að veiðar séu sjálfbærar og ógni ekki stofni árinnar segir Einar ekki svo vera. „Þetta er okkar eign, en það er búið að leigja hana. Ef ég leigi íbúðina mína þá get ég ekki gert breytingar nema í samráði við leigjanda minn. Þetta gerist ekki á samningstíma nema með samráði við leigutakann enda liggja forsendur samningsins fyrir. „Menn geta sest niður og rætt málin. En SVFR er búið að selja leyfin og það flækir stöðuna enn,“ segir Einar.Almennt veiðibann þyrfti til „Fiskistofa getur tekið svona mál upp að eigin frumkvæði en núna eru menn með áhyggjur um allt land þannig að ég sé ekki hvernig ætti að grípa inn í veiði í einni sérstakri á öðruvísi en þetta yrði gert almennt á svæðinu, t.d. sunnan- og vestanlands. Það væri útilokað að taka eina á út,“ segir Guðni Magnús og bendir á að veiðibanni myndi fylgja ýmiss álitamál og líklega skaðabótamál. Hann sér því ekki að það sé raunhæft fyrir Fiskistofu að beita sér í sumar, en „auðvitað eftir sumarið fara menn ofan í saumana á þessu og athuga hvað hægt er að gera. Þegar lögunum var breytt árið 2006 þá kölluðu veiðifélögin eftir meira sjálfræði varðandi nýtinguna í samráði við Fiskistofu. Þannig að ábyrgðin liggur mikið hjá félögunum að nýta þessar auðlindir með sjálfbærum hætti og forða slysum,“ segir Guðni Magnús.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Umhleypingar næstu daga Veður Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir „Ég trúi á lausn“ Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Sjá meira