Bouchard í sögubækurnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. júlí 2014 15:52 Eugenie Bouchard fagnar í dag. Vísir/Getty
Eugenie Bouchard frá Kanada og hin tékkneska Petra Kvitova mætast í úrslitaleik einliðaleiks kvenna á Wimbledon-mótinu í tennis á laugardag. Bouchard, sem er aðeins tvítug, hafði betur gegn Simonu Halep frá Rúmeníu í undanúrslitum í dag en hún er fyrst kanadískra keppenda til að komast í úrslit mótsins í einliðaleik. Sú kanadíska vann fyrsta settið eftir bráðabana, 7-6, og tók síðan völdin í öðru setti sem hún vann, 6-2. Halep sneri sig reyndar á ökkla snemma í viðureigninni og líklegt að það hafi haft áhrif á hennar frammistöðu í dag. Bouchard, sem vann stúlknaflokkinn á Wimbledon fyrir tveimur árum síðan, hefur náð skjótum frama á skömmum tíma en hún komst alla leið í undanúrslit á bæði Opna ástralska meistaramótinu og Opna franska fyrr á þessu ári. Kvitova hafði betur gegn öðrum Tékka, Lucie Safarova, á svipaðan máta. Fyrsta setti var hnífjafnt en Kvitova vann eftir bráðabana. Hún tók svo leikinn yfir í öðru setti sem hún vann örugglega, 6-1. „Þessi leikur reyndi á taugarnar því Lucie er mikil vinkona mín. Ég er bara ánægð með að ég vann,“ sagði Kvitova.
Tennis Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Ofursunnudagur á Sýn Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Falko farinn frá ÍR Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Eyjakonur unnu opnunarleikinn Sjá meira