Víðtækar verkfallsaðgerðir boðaðar í næstu viku Birta Björnsdóttir skrifar 12. júní 2014 20:00
Náist samningar ekki í kjaradeilu flugvirkja Icelandair við félagið leggja flugvirkjar niður störf á mánudaginn kemur í sólarhring. Þá hafa verið boðaðar ótímabundnar verkfallsaðgerðir frá og með 19. júní. Fundað var í húsnæði ríkissáttasemjara í dag og stóð fundur enn yfir nú rétt fyrir fréttir. Stjórn samtaka ferðaþjónustunnar sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem þeir hvetja samningsaðila til að leita allra leiða til að ná sáttum í deilunni sem fyrst. Komi til vinnustöðvunar á mánudaginn kemur muni það hafa mikil áhrif á alla skipulagða ferðaþjónustu hér á landi. Vinnustöðvunin muni hafa áhrif á fleiri farþega þennan eina dag en allar verkfallsaðgerðir flugmanna nú á vormánuðum samanlagt. Nú þegar sé áhrifa farið að gæta hjá ferðaþjónustuaðilum, og eitthvað sé um að ferðamenn hafi afbókað ferðir sínar vegna óvissunar. En það eru ekki bara flugvirkjar sem boða verkfall í næstu viku. Leikskólakennarar leggja einnig niður störf þann 19.júní næstkomandi, náist samningar ekki í kjaraviðræðum. Næsti samningafundur í kjaradeilu leikskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga er áætlaðu klukkan 11 á morgun. Að sögn Haraldar Freys Gíslasonar, formanns Félags leikskólakennara ber enn mikið í milli, en róið sé öllum árum að því að ná samningi fyrir fimmtudaginn í næstu viku. Ekki eru allir starfsmenn leikskóla landsins í Félagi leikskólakennara, en að sögn Haraldar munu þó velflestar deildir loka komi til vinnustöðvunar á fimmtudaginn næsta.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira