Fjórir grunaðir um líkamsárás á Hvammstanga Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. júní 2014 16:09 Hvammstangi VISIR/JON
Fjórir karlmenn voru handteknir á Hvammstanga í nótt grunaðir um líkamsárás. Árásarmennirnir eru á öllum aldri, sá yngsti er um tvítugt en sá elsti á sextugsaldri en lögreglan á Akureyri, sem fer með rannsókn málsins vildi ekki gefa upp nánari upplýsingar að svo stöddu. Hún staðfesti þó í samtali við Vísi að fjórir karlmenn lægju undir grun en DV greindi frá þessu fyrr í dag. Talið er að mennirnir hafi verið í gleðskap ásamt fimmta manni í íbúð eins árásarmannanna. Heimildir blaðsins herma að hringt hafi verið á lögreglu þegar fórnarlambið var byrjað að hósta upp blóði þó nánari málavextir séu ókunnir. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann í Fossvogi og í kjölfarið var kallað á lögreglu. Töluvert af blóði mun hafa verið í íbúðinni þegar lögreglu bar að garði. Líðan mannsins liggur ekki fyrir að svo stöddu.Uppfært 17:55Lögregla var látin vita af árásinni af lækni á bráðadeild Landspítalans eftir að þangað var fluttur maður á fertugsaldri með lífshættulega áverka. Ekki var vitað hvernig áverkarnir væru til komnir, en grunur lék á að þeir væru til komnir vegna refsiverðrar háttsemi. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að málið heyri undir lögregluna á Akureyri samkvæmt reglum um sérstakar rannsóknardeildir. Fjórir karlmenn hafa verið handteknir og eru nú í fangageymslum á Akureyri. Lögreglan á Akureyri segir málið enn vera á frumstigi og ekki sé hægt að greina nánar frá því á þessu stigi. Lögreglan á Akureyri nýtur aðstoðar tæknideildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við rannsókn málsins. Gert er ráð fyrir að lögreglustjórinn á Akureyri muni fara fram á gæsluvarðhald yfir hinum handteknu síðar í kvöld.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira