Formúla 1

Ferrari neitar að hafa hótað að hætta í F1

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Montezemolo bendir á hluti sem mega betur fara.
Montezemolo bendir á hluti sem mega betur fara. Vísir/Getty
Forseti Ferrari, Luca di Montezemolo telur að Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) hafi misst sjónar á því um hvað Formúla 1 á að snúast. Liðið hefur neitað að vera að hugleiða að hætta keppni sökum þessa.

„Formúla 1 virkar ekki,“ sagði Montezemolo.

„Hún er á niðurleið vegna þess að FIA hefur gleymt því að fólk horfir á kappakstur vegna spennunnar. Það horfir enginn á kappakstur vegna sparneytninnar, koma svo,“ sagði forseti Ferrari.

„Fólk horfir á kappakstur til að skemmta sér. Það vill enginn horfa á ökumenn spara eldsneyti eða dekk. Fólk vill sjá þá komast eins hratt og þér geta héðan og hingað. Þetta er íþrótt, já, en líka sýning,“ bætti Montezemolo við.

Vangavelturnar um að Ferrari ætli að hætta í Formúlu 1 hófust þegar orðrómur fór á kreik um að Ferrari ætlaði að hefja aftur keppni í þolakstri. Þá sagði Montezemolo að Ferrari gæti ekki gert bæði því það væri ómögulegt.

Ferrari hefur hafnað því að í orðum Montezemolo hafi falist hótun um að hætta í Formúlu 1.

„Sumir fjölmiðlar hafa fjallaðu um að Ferrari muni hætta í Formúlu 1 til að einbeita sér að Le Mans 24 klukkustunda keppninni og þolakstri,“ sagði í yfirlýsingu frá liðinu.

„Þeir hafa teygt aðeins úr orðum forsetans Luca di Montezemolo þar sem hann sagði að Formúla 1 þurfi að þróast og endurnýja sig, hann viðurkenndi líka að 24 klukkustunda keppnin væri heillandi. Þegar sagt er að eftir 2020, gæti Ferrari hætt í Formúlu 1 til að einbeita sér að Le Mans og þolaksturskeppnum, þá er verið að teygja hans orð of langt. Plús það auðvitað, það er ekkert sem stoppar Ferrari í að leggja meira í sölurnar og keppa í báðum keppnum. Svo þetta eru inanntómar getgátur,“ sagði í yfirlýsingu frá Ferrari vegna málsins.


Tengdar fréttir

Allison: Ferrari þarf að vera frumlegra

James Allison tæknistjóri Ferrari liðsins segir að verkfræðingar liðsins verði að fá meira frelsi til að leita frumlegra lausna, ætli liðið sér að búa til bíl sem vinnur keppnir.

Mosley: Formúla 1 missti af tækifæri

Fyrrum forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins, Max Mosley telur að stór nöfn í Formúlu 1 séu að gera mistök. Hann telur ekki rétt að gagnrýna nýja kynslóð véla. Frekar eigi að útskýra V6 vélarnar fyrir almenningi.

Stefano Domenicali hættur hjá Ferrari

Liðsstjóri Ferrari, Stefano Domenicali er hættur sem liðsstjóri hjá Ferrari samkvæmt ítölskum fjölmiðlum. Marco Mattiacci mun taka við hans starfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×